Vinnuvikan á enda

Kótilettur á Bókakaffi á Egilsstöðum.

Stundum koma vikur sem eru erfiðari en aðrar vikur. Þegar Ingvar setti á mig 10 klukkustunda viku á hjólinu fannst mér það ekki hljóma svo illa en ég hef átt fullt í fangi með að klára þetta. Það hefur verið bölvað álag á öllum vígstöðvum og ég reynt að gera mitt besta og reynt að vanda mig við að annast börnin, gefa þeim góðan mat, láta þau læra og við erum aðeins byrjuð að skreyta og gera jólalegt.

Á miðvikudaginn þurfti ég að fara í vinnuferð til Egilsstaða og var ekki kominn heim fyrr en um kvöldmat. Harpa bjargaði mér og sá um börnin, bakaði með Dagbjörtu og eldaði fisk í raspi. Ég kom passlega heim til að ná kvöldmat. Eftir kvöldmat átti ég eftir að láta börnin læra, koma þeim í bælið og svo taka stutta „recovery“ æfingu. Ég átti fullt í fangi með að klára hana og var algerlega loftlaus. Akstur, stress og fundarhöld (kannski líka ofát af kótilettum í raspi í hádeginu) gerðu það að verkum að ég átti ekkert inni.

Í gærkvöldi (fimmtudag) þurfti ég að fara á fund í hjólreiðafélaginu og átti líka krefjandi þröskuldsæfingu. Æfingin var miklu erfiðari en síðustu æfingar sem voru sambærilegar. Og ég á eftir að taka aðra slíka í dag og kvíði satt best að segja aðeins fyrir því. Í kvöld er svo jólahlaðborð með vinnunni en eftir það er mesta álagið í þessari viku búið og ég get gefið börnunum 100% athygli og hellt mér í jólastúss. Harpa er því miður að vinna alla helgina en við fáum betri tíma saman í næstu viku.

Á morgun og sunnudag eru 2 klst. endurance æfingar á hjólinu og ég er staðráðinn í að taka þær bara rólega því ég held að ég hafi gott af því. Síðan ég byrjaði að æfa hjá Ingvari hef ég tæklað hvert verkefnið á fætur öðru án vandræða en nú er ég farinn að finna meira fyrir þessu. Ég tengi þetta beint við andlegt álag og verð að passa mig á næstunni að keyra ekki fram af brúninni.


Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap