Tveir dagar í hvíld og svo allt í botn aftur
Ég, Harpa, Brynleifur Rafnar og Dagbjört Lóa. |
Ég átt yndisleg jól í Vagnbrekku þó ég hafi auðvitað saknað Hörpu og barnanna. En við bættum okkur það upp með okkar eigin jólunum sem við héldum í gær (27. des). Við borðuðum graut í hádeginu og fórum svo út á sleða í Jólasveinabrekkunni. Við klæddum líka Nóa og Billa í peysur og leyfðum þeim að koma með. Síðan átum við fylltar kalkúnabringur um kvöldið og opnuðum pakka. Kirsuberið á kökuna var svo marenge og heimatilbúinn ís sem Harpa gerði. Hún er snillingur í því.
Á leið í Jólasveinabrekkuna. |
Jólin í Brekku voru hinsvegar með hefðbundnu sniði og allar helstu jólahefðir til staðar; laufabrauð, magaáll, heimareykt hangikjöt, Quality Street, aspasúpa, jólaöl og rjúpur. Þetta er svona það helsta sem ég tengi við alvöru jól þó ég sé ekkert allt of stífur á einhverjum hefðum. Ég komst nú létt frá þessu öllu og skammaðist mín hálfpartinn hvað ég lagði mig lítið fram í að græja og gera. Ég reyndar gerði að rjúpunum og skipti mér eitthvað aðeins af eldamennskunni á þeim. Annars lá ég mest fyrir og horfði á Netflix. Ég var í smá spennufalli eftir erfiðan desember og kannski aðeins lúinn eftir miklar æfingar.
Harpa og Billi, hundunum var orðið skítkalt þó þeir væru í peysum. |
En talandi um æfingar, eftir 2 daga pásu átti ég að taka 2 daga "frjálst jólahjól". Ég tók 2 klst endurance báða dagana og tók nokkuð vel á því. Í dag fórum við Harpa í ræktina í hádeginu og svo átti ég 1:40 klst VO2max æfingu sem tók ansi vel í . Ég á líka VO2max æfingar næstu 2 daga og svo förum við í ræktina á sunnudaginn og ég á aftur frjálst hjól þann daginn. Það er því nokkuð ljóst að ég verð vel grillaður eftir þessa viku. En ég ætla ekki að kvarta yfir því þar sem það er víst enginn að biðja um að gera þetta.
Ummæli