Smá þreyta
Stóra vikan gengur vel. |
Föstudagsmorgun og lífið og æfingar ganga vel. Ég er búinn að taka 3 klst. æfingu 2 daga í röð og það hlaðast upp tímarnir. 7,5 klst. í hús og 5,5 klst. eftir til að klára vikuna.
Æfingin í gær voru 3 klst. á 65% af FTP (Z2) og ég hélt hjartslættinum að meðaltali í 118 bpm. Langa threshold æfingin sat náttúrulega aðeins í mér og ég var alveg 45 mínútur að koma mér í gang. Eftir það var ég bara nokkuð sprækur en fór svo að lýjast í lokin.
Ég hef verið að passa mig vel á því að éta mjög vel á hjólinu og ég vil meina á því að það sé ein stærsta ástæðan fyrir því hvað ég hef verið að negla allar æfingar vel. Ef maður er farinn að brenna allt upp í 2000 kaloríum á einni æfingu er eins gott að reyna að halda orkujafnvægi. Að taka inn kolvetni á ca. 20 mínútna fresti tryggir að maður nái að klára æfinguna og kemur í veg fyrir það að maður „bonki“. Þetta á við æfingar sem eru 1,5 klst. og yfir.
Þegar ég tala um að éta vel á hjólinu, þá meina ég vel. Skammtur fyrir 3 tíma threshold æfingu. Trek stykki, banani, 100 gr. Haribo, 3 muffins og 2 Gatorade (kláraði bara annan). |
Það sem gjarnan er kallað að „bonka“ er þegar maður verður bensínlaus og klárar allt glýkógen í vöðvunum og lifrinni. Afleiðining er að maður missir niður afl, verður ringlaður og líður ekki vel. Þegar maður klárar æfinguna vafrar maður svo inn í eldhús og ryksugar upp allt kex, morgunkorn og nammi sem maður finnur. Og nei, maður ræður ekki við sig. Ef maður borðar vel á hjólinu þá er maður í jafnvægi þegar maður er búinn og yfirleitt ekki svangur.
Í dag er 60 mínútna endurheimt, þ.e. bara rólegt spinn til að ná upp smá blóðflæði í lappirnar og jafna sig eftir átökin. Ég ætla ekki að ljúga því að ég sé ekki með smá þreytu eftir síðustu daga en líður samt miklu betur en ég hefði þorað að vona.
Ummæli