Æfingablokk lokið

Alvöru æfingavika- 13 klst. á hjólinu og 631 TSS sem er örugglega það mesta sem ég hef tekið inni á einni viku.

Nú er þessari feitu æfingablokk sem Ingvar setti á mig þessa vikuna lokið. Það er búið að vera forvitnilegt að fara í gegnum þetta og ég er hrikalega ánægður með hvernig þetta gekk. Þetta byrjaði með að hlaða upp smá þreytu með 3 klst. threshold æfingu og fylgja því svo eftir með 3 klst. endurance æfingu. Síðan kom einn dagur í frí (60 mín recovery) en svo ein hrikaleg over/under sem ég fylgdi eftir með annari 3. klst. æfingu.

Over/under æfing sem tók vel í.

Over/under æfingin á laugardaginn var það erfiðasta sem ég gerði í vikunni þrátt fyrir að hafa fengið recovery-dag á undan. Ég þurfti að vera mjög "creative" til að klára hana og ímyndaði mér að ég væri í keppni og mætti ekki missa af hópnum. Stundum þurfti ég að standa upp, skipta um gíra og reyna að finna hæfilegan sveifluhraða (cadence). En þetta hafðist og ég var ótrúlega stolur af því að hafa neglt hana eins og ég átti að gera- meira að segja með örlítið fleiri TSS en við lögðum upp með. 

Í dag (sunnudag) tók ég svo þriggja tíma endurance og ég var hissa hvað ég var sprækur. Helstu merki undir lok vikunnar um að ég væri að þreytast voru andlegs eðlis. Það var orðið erfiðara að mótívera sig í að taka æfingu og ég var ekki alveg að nenna því. Hlakka til að fá frí á morgun.
"Góð lýsing á vikunni, þetta er nákvæmlega það sem við viljum. Til að ná stórum stökkum í formi þurfum við að grafa djúpt, en erum ekki að því í hverri einustu viku." 

Ingvar var ánægður með vikuna hjá mér og það er gaman að fá pepp frá honum inn á Training Peaks. Hann er búinn að henda inn næstu viku fyrir mig og það verður nóg að gera þó þetta verði ekki jafn mikið álag og síðasta vika. Tvær feitar þröskuldsæfingar og svo 7 klst. af endurance.

"Virkilega ánægður með þetta maður. Þú ert að finna leiðir til að klára þessi verkefni og þær eru mjög góðar :) Já alvöru vika, þú færð líka góða næstu viku"

Að lokum vil ég ítreka það að ég væri aldrei að klára allar þessar æfingar nema að vera að sofa nóg og éta vel. Ég ræð lítið við stressið í vinnunni en get stýrt hvað ég læt ofaní mig og hvenær ég fer í bælið. Hvoru tveggja lykilatriði.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap