Bæting þrátt fyrir klúður

Fimm mínútna "test blokkin" ber vott um klúður en ég gaf allt í þetta.

Þá er ég búinn með fyrra test vikunnar- 5 mínútna VO2max test. Síðast þegar ég fór í þetta var ég með 310w (4,73 w/kg) en í dag náði ég 316w sem skilar mér 4,82 w/kg. Ég sagði við sjálfan mig fyrir prófið að ég yrði ánægður með bætingu upp á 10w en það náðist ekki. 

Það er ekki annað hægt að segja en að ég hafi verið ágætlega upp lagður í þetta en ég klúðraði þessu með að reyna að halda uppi allt of miklum snúningi (cadence) í upphafi. Ég henti mér strax upp í 114 snúninga/mínútu sem er langt fyrir ofan það sem ég er vanur. Það gekk allt í lagi í tæpa mínútu en þá fór að draga verulega af mér. Ég fór því að hræra í gírunum og missti niður allt afl í rúma mínútu. Ég vann það svo upp með því að standa upp og halda 330 vöttum í 1,5 mínútur í lokin.

En hvar þýðir þetta í stóra samhenginu? Skv. þessu er ég ennþá í flokki sem kallast Cat 3 en er nálægt því að koma mér upp í Cat 2 sem er flokkað sem "Very good". Fyrir ofan hjólara sem eru Cat 2 eru "Cat 1", "Domestic pro's", "International pro's" og að lokum "World record holders". Markmiðið hjá mér er að koma 5 mínútna afli upp í Cat 1 í sumar en ég á eftir að ræða það við Ingvar.

Þó ég sé svektur að hafa ekki skorað hærra á testinu í dag ætla ég að taka eitthvað jákvætt út úr þessu. Ég er ekki búinn að vera að taka VO2max æfingar og þetta var þrátt fyrir allt bæting. Ég klúðraði þessu að einhverju leiti með "taktískum" mistökum og klaufaskap og rúlla þessu upp næst.

Á laugardaginn er svo stóri dómur; 20 mínútna FTP-test sem er alger fokking dauði og ég hlakka ekki til. Það verður pasta í kvöldmatinn á föstudaginn.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap