Fyrsta alvöru vikan
Þriggja tíma threshold æfing á miðvikudaginn næsta. |
Jæja þá er alveg frábærri helgi í Reykjavík lokið. Ég fór með 5. flokki Þórs í körfunni til að keppa 4 leiki á Hlíðarenda. Það var gaman að kynnast liðsfélögum Brynleifs og þetta eru alveg ótrúlega nettir og skemmtilegir gaurar. Það var samt ekki laust við að maður væri orðinn lúinn þegar maður kom heim seint í gærkvöldi enda fullt starf að passa upp á að strákarnir gleymi hvorki sjálfum sér eða einhverju dóti hér og þar. Ég var orðinn svo grillaður að ég sjálfur gleymdi dýnunni sem Harpa lánaði mér.
Ég settist á hjólið klukkan 21 í gærkvöldi og tók tveggja tíma æfingu. Reiknaði einhvernveginn með að ég myndi ekki endast svona lengi en leið bara vel og kláraði. Ótrúlega gott að hreyfa sig eftir óþarflega mikið sukk um helgina.
Ég var búinn að setja inn í dagatalið að Ingvari væri óhætt að setja á mig langar æfingar miðvikudag og fimmtudag í þessari viku og hann náttúrulega tók mig á orðinu. Ég tek 3 þriggja tíma æfingar í vikunni og skila samtals 13 tímum ef allt gengur að óskum.... sjæse..
Ummæli