Test dagur #2
5 mínútna VO2 max test. |
Ég finn ekki mikið fyrir testinu í gær enda var það stutt þó maður hafi tekið vel á því. Í dag er á matseðlinum sambærilegt test nema núna á ég að reyna að halda eins miklu afli og ég get í 5 mínútur. Þó þetta sé mín sterkasta hlið þá er ég drullu nervous fyrir þetta og reikna ekki með neinni flugeldasýningu.
Testið byrjar rólega en svo tek ég 4x1mín af 320 vöttum, fæ hvíld og keyri svo á þetta. Þegar ég er úti hef ég alveg getað tekið 5x5mín á 300 vöttum í VO2 max æfingum en giska á að ég verði í kringum 320-330 vött í 5 mínútur inni. Þetta verður alger dauði en ég geri mitt besta.
Annars er ég sæmilega úthvíldur miðað við allt og búinn að vera duglegur að borða hollan mat. Fullt af hrísgrjónum, kartöflum, fiski og kjúklingi. Og svo auðvitað minn feiti [spínat]morgun-smoothie sem heldur mér gangandi alla daga.
Ummæli