Fyrsta vikan hjá Ingvari

Vikan á Training Peaks.

Jæja þá er ég dottinn inn í fyrstu vikuna undir stjórn Ingvar Ómars sem þjálfara. Hann henti inn 2 æfingum í síðustu viku (sem voru krefjandi) og í þessari viku skila ég 6 æfingum, þar af 2 sem taka vel í. Hinar eru endurance og/eða recovery.

Ég spjallaði við Ingvar á Teams á mánudagskvöldið og hann sagði mér frá aðferðafræðinni sem hann notar. Það var ánægjulegt því það var alveg í takt við það sem ég hef trú á (nokkurskonar polarized) og snýst um að hjóla mikið, mest á lágri ákefð og byggja upp stórann grunn. (tempo og þröskuldsæfingar koma einnig við sögu). Þegar grunnurinn er kominn hleður maður ákefð ofan á og hækkar FTP-ið (vöttin sem maður skilar), t.d. með VO2max æfingum. Stór grunnur tryggir að maður er þá tilbúinn fyrir álagið. Þetta á líka að tryggja að maður endist betur og eigi eitthvað á tanknum þegar komið er langt inn í keppni. Góð samlíking er að við viljum frekar eiga Ferrari heldur en upptjúnnaða Impresu. Við erum að byggja upp stóra vél.

Ingvar er margfaldur Íslandsmeistari í hjólreiðum og ég treysti honum fyrir að leiða mig á réttar slóðir.

En það er eitt að hafa trú á hlutunum og annað að praktísera. Ég hef reynt að fara eftir þessari aðferðafræði en aldrei verið nógu grimmur og sennilega aldrei skilað nægilega mörgum tímum til að sjá almennilegan árangur. Núna er ég kominn með mann í verkefnið og finn strax að ég er kominn með jákvæða pressu að leggja enn meira á mig.

What we are trying to achieve is a polarization of the stress of the daily training sessions . . . on most days we have an intention to achieve a training session without triggering a big stress response. 

— DR. STEPHEN SEILER

Eins og ég sagði áðan þá hafa æfingarnar (tempo og þröskuldur) verið frekar krefjandi og er ástæðan sú að við erum ekki búnir að taka test og ég er því sennilega með of hátt FTP skráð. Ingvar vildi samt að ég myndi setja undir mig hausinn og reyna að komast í gegnum þessa viku og við tökum test í næstu viku. Kannski er hann aðeins að testa hversu harður ég er og sjá hvernig ég bregst við? Ég hlakka líka til að sjá hvernig þetta fer í mig því Ingvar myndi helst vilja sjá mig fara upp í 12-14 klst. af hjóleríi á viku. 

Þessi vika byrjaði annars frekar illa og ég var undir sturluðu álagi tvo síðustu daga. Ég kláraði samt æfinguna í gær þó ég væri illa upp lagður og í dag er ég korter í kvef og illt í maganum. Bót í máli að æfing dagsins er auðveld. Meira síðar


Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap