Vikulokin

Vikan á Training Peaks.

Það er s.s. ekki neitt að frétta, lífið gengur sinn vanagang og ég reyni að hreyfa mig og éta hollt eins og ég get- þó ég hafi aðeins slegið úr í hjólreiðunum. Ég er ekki að æfa eftir plani og það er ágætt að taka smá pásu frá því. Í vikunni er ég samt búinn að hjóla tvisvar og ætla að hjóla eftir vinnu í dag. Síðan er það ræktin á laugardag og sunnudag. Ég skellti mér út að hlaupa í gær og það gekk þrusu vel. Ég hljóp rúma 6 km og hélt ágætis hraða án þess að finna mikið fyrir því. Þegar ég var búinn að hlaupa henti ég mér á gólfið heima, teygði á og gerði armbeygjur og upphífingar.

Varðandi hlaupin þá finn ég svo ótrúlega mikinn mun að taka þó það sé ekki nema kannski eitt hlaup í mánuði til að halda mér við. Ef ég sleppi mörgum mánuðum í röð hinsvegar, þá verð ég alveg ónýtur þegar ég byrja aftur.

Ég verð að vinna í Reykjavík alla næstu viku og var búinn að ætla mér að taka alveg frí frá æfingum. En það stefnir hinsvegar í að ég verði aðra viku í Reykjavík í nóvember líka þar sem ég get ekkert æft, þannig að ég er að hugsa um að fresta hvíldarvikunni þangað til. Í næstu viku mun ég væntanlega nota ræktina á Grand Hotel og fara eitthvað út að hlaupa.

Ég er búinn að eiga í viðræðum við Ingvar Ómars og hann er tilbúinn til að taka mig í þjálfun. Við stefnum að því að byrja í október en eigum eftir að hittast og ræða málin. Ég er ótrúlega spenntur að byrja ferlið og finn að þetta mun blása nýju lífi í æfingarnar. Hlakka mjög til að sjá hvaða aðferðum hann mun beita og frábært að fá fersk augu á þetta. 

Annars er líka kominn sá árstími að maður þurfi að fara að yfirfara hjólin sín. Ég þarf að fara að skipta um keðjur á götuhjólunum, smyrja og ditta að þessu öllu. Focus-inn þarf að vera klár í veturinn á trainer og nýja hjólið tilbúið á Tenerife í mars. Í þessu sambandi er ég að kaupa slatta af verkfærum, vaxi og fleira frá Þýskalandi svo ég geti verið sem mest sjálfbjarga í þessu. Verst hvað ég er klaufskur við þetta allt og hef í raun takmarkaðan áhuga á þessu. En af tvennu illa er betra að vera sjálfbjarga heldur en að þurfa alltaf að borga fyrir þessa þjónustu.

Að lokum, þá er Trek ferðahjólið mitt sem ég nota í vinnuna gjörsamlega orðið útjaskað líka og ég þarf örugglega að skipta um alla víra og hulsur, setja nýja kasettu, keðju, bar tape og jafnvel tannhjól að framan (cranck set). Ég hugsa að ég geymi það verkefni samt fram í snjóa þegar ég verð farinn að nota fat bike-ið.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap