Vikan
Dagbjört að læra stærðfræði. Það kemur sér vel að vera ríkur og geta notað peninga til að stauta sig fram úr þessu. |
Þá er þessi vika á enda og óhætt að segja að hún hafi bara verið alveg prýðileg. Vinnan var strembin en við náðum góðum árangri í stóru verkefni í Reykjavík sem hefur verið í gangi í rúmlega 3 ár. Nú hyllir undir að við getum skilað því af okkur og það hleypir í mann kappi og léttir af manni pressu. Þetta hefur verið rosalegt lærdómsferli og ég er búinn að viða að mér gríðarlegri þekkingu, bæði í mjög sérhæfðum verkefnum sem eiginlega enginn hefur þekkingu á hér á landi- en líka í verkefnastjórnun, mannlegum samskiptum og krísustjórnun. Nóg um það.
Æfingavikan. |
Þrátt fyrir allan erilinn þá hef ég náð að æfa alveg þokkalega. Þrjú hlaup, þrisvar í ræktina og ein hjólaferð. Hjólaferðin var kannski óþarflega agressív miðað við að ég var með strengi eftir ræktina en ég var bara nokkuð sprækur. Hausthlaupið er á miðvikudaginn og ég reikna með að hvíla á morgun og taka létt hlaup á þriðjudaginn.
Mataræðið hefur verið frekar skrautlegt og ég er að þyngjast óþarflega hratt. Það er bæði vegna þess að ég hef skrúfað niður í hjólaæfingunum (og farið að lyfta) og svo át ég óþarflega mikið í Reykjavík. Það var s.s. ekki allt eitthvað óhollt en skammtarnir voru í jólastærðum. Ég verð að vinda ofan af þessu.
Annars er ég búinn að eiga frábæra helgi með ungunum mínum og lífið leikur við okkur. Yfir og út....
Ummæli