Lífið er fiskur, stundum salt- og stundum ekkiÞ
Það var soðning hjá okkur börnunum í kvöld. |
Börnin eru hjá mér þessa vikuna og það er því í mörg horn að líta. Æfingar hjá okkur öllum, lærdómur, vinna, skóli og allt sem þessu fylgir. En svona er lífið 90% af tímanum og eins gott að njóta þess. Okkur leiðist ekki og mér finnst þetta besta hlutverk í heimi.
Síðasta vika í æfingum var ágæt, aðalega hlaup og rækt. Ég fór reyndar bara einu sinni á hjólið og þarf að gera betur þessa vikuna. Ég stefni að því að taka 10.000 km á þessu ári í æfingar á götuhjólinu og sýnist að ég þurfi að hjóla allavega 183 km í viku til að ná því. Það er því best að sofna ekki á verðinum.
Ég ætlaði að taka 3x15 mínútna tempo æfingu áðan (samtals 1,5 klst) en hætti eftir klukkutíma þar sem ég var kominn með samviskubit yfir að vera ekki að sinna börnunum. Ég kom óvenju seint heim úr vinnunni og það var farið að líða að kvöldmat þegar á henti inn handklæðinu. Þetta var reyndar líka drullu krefjandi æfing og ég skil ekki hvað mér finnst ótrúlega mikið erfiðara að hjóla á trainer-num miðað við úti.
Nú er klukkan að nálgast 21 og ég ætla að senda börnin í rúmið og fylgja sömu leið sjálfur. Þarf að vakna kl. 05:15 og fara með Hörpu í ræktina. Síðan ætla ég að taka æfingu eftir vinnu á morgun og þarf svo að hjóla með Brynleifi upp í Síðuskóla annað kvöld að máta nýjan körfuboltabúning. Ég er því löglega afsakaður að hætta þessu þusi......
Ummæli