Hlaup gekk vel

Run splits úr Hausthlaupi UFA.

Jæja þá er Hausthlaupið búið og ég er bara mjög sáttur við hvernig gekk hjá mér. Ég var að gæla við að halda ca. 4:20 min/km í hlaupinu en gerði svo gott betur en það. Ég renndi blint í sjóinn með þetta en á frekar gott með að hlaupa eftir tilfinningu og passa mig að fara ekki yfir limmið í upphafi.

Ég hitti Hjalta Jóns fyrir hlaupið og ákvað að reyna að fylgja honum eins og ég gæti. Hjalti er sterkari hlaupari en ég alla jafna en hann var ekki búinn að hlaupa síðan í ágúst þannig mér fannst líklegt að við værum á svipuðum stað. Hjalti talaði um að passa sig á að byrja ekki of skarpt heldur eiga frekar eitthvað inni á leiðinni til baka. Það var gott plan og vindurinn í bakið seinnipartinn.

Við ræstum um miðjan hóp en vorum fljótlega búnir að koma okkur í hóp fremstu hlaupara. Ég lét Hjalta stjórna hraðanum og var yfirleitt við hliðina á honum eða rétt fyrir aftan. Það er miklu auðveldara að elta einhvern í stað þess að stjórna hraðanum sjálfur en ástæðan fyrir að ég ákvað að leiða ekki sjálfur var einfaldlega sú að ég hélt að ég gæti sprengt mig. Hraðinn sem Hjalti setti var að virka fínt fyrir mig.

Þegar á leið fórum við að éta upp bilið í fremstu menn og þegar 2 kílómetrar voru eftir vorum við Hjalti og einn annar (Baldvin) komnir í hóp fjögurra fremstu manna. Aðeins Ingvar Gísla var á undan okkur en við vorum heldur að draga á hann. Þegar 1,5 km voru eftir fór Baldvin að gefa aðeins í en ég límdi mig við lappirnar á honum og fór að velta fyrir hvort ég ætti að fara að láta vaða í lokasprett. Ég hélt samt aftur af mér þangað til það voru rúmlega 500 metrar eftir. Þá gaf ég vel í og náði að slíta mig frá Hjalta og Baldvin. Ég vann hratt á Ingvar en það var samt ekki nóg. Annað sætið var niðurstaðan og Strava segment-ið fyrir 5 km hlaupið sýndi 20:55. Flögutími var rétt yfir 21 mín. 

Ég var búinn að gæla við að fara þessa 5 km á undir 22:00 mín og gerði gott betur en það. Ég er þrusu sáttur við þetta og mér leið vel allan tímann. Fann ekkert til í löppunum og sé að ég átti ennþá eitthvað inni í lokin. Á myndinni má sjá „Time Split“ og þar sést að þetta var mjög skynsamlega hlaupið.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap