Dagbók - 28.09.2023

Gamall klassíker; fiskibollur með brúnni, grænum og rabarbarasultu.

06:50: Vakna, spínat smoothie, rist, vekja börn, drekka kaffi og taka fréttir.
08:05: Óvenju seinn í vinnu- smá kaffi og svo beint að skrifborðinu (smoothie og hrökk kl. 09:30)
12:00: Hádegismatur með vinnufélögunum og svo aftur að vinna.
15:38: Stimpla mig út eftir gallsúran og erfiðan dag.
16:10: Settist á hjólið og tók 40 km Group Ride á Zwift. Banani á undan og vatn og Haribohlaup á hjólinu
17:20: Kláraði að hjóla og fór að undirbúa mat og bíða eftir börnunum.
19:00: Fengum okkur fiskibollur og tilbehör.
19:30: Gekk frá í eldhúsinu og henti mér svo í bað.
20:00: Hjálpaði Dagbjörtu að læra og leysti krossgátu.
20:30: Fréttir og kapall
21:00: Dagbjört í bælið og ég að bíða eftir að Brynleifur komi heim úr sundi (hann var líka búinn að fara á körfuboltaæfingu.

Hápunktur dagsins: Að teymið mitt og yfirmenn standi saman í erfiðu máli. Að komast á hjólið til að gleyma sér aðeins. Að lokum, að borða mat og spjalla við börnin.

Lágpunktur dagsins: Erfitt fólk

Hugleiðingar: Ég er búinn að sofa óvenju illa síðustu nætur og ég átta mig ekki hver skýringin getur verið. Ég er að upplifa rosalegt stress en finnst ég samt vera að díla nokkuð vel við það. Það skrítna er að þrátt fyrir allt álagið og lélegan svefn þá líður mér í rauninni býsna vel. Ég er ágætlega upplagður á æfingum og finnst ég fullur orku. Aldrei þreyttur í vinnunni. Það er helst að ég verði smá þreyttur þegar ég sest niður eftir kvöldmat og kíki á fréttir, en svo líður það hjá og ég fer glaðvakandi inn í rúm. 

Það sem fer helst í taugarnar á mér er að vera að vakna á næturnar, bylta mér og fara á klósettið. Síðan losa ég svefninn oftast um klukkan 06:00. Það verður forvitnilegt að vita hvort þetta kemst í lag þegar ég kemst í gegnum þetta erfiða tímabil í vinnunni eða hvort þetta eru ellimerki.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap