Ársuppgjör- markmið og mót
Uppáhaldsmynd eftir sumarið- bikarmót 3 í Kjós. |
Nú [keppnis]árið er liðið í aldanna skaut og því ágætt að fara aðeins yfir hvernig gekk hjá mér. Ég skrifaði á sínum tíma pistil þar sem ég fór ítarlega yfir öll markmið fyrir tímabilið og annan pistil þar sem ég fór yfir hvernig maður setur sér markmið. Þann síðari má lesa hér.
En ég ætla að byrja á því að lista upp markmiðin og merkja hvort ég náði þeim eða ekki. Ég er í vandræðum með sum þeirra og tek því umfjöllun um hvert og eitt líka.
- Drekka meira vatn ✅
- Liðkun og teygjur ✅
- Long ride ❌
- 4 w/kg í ágúst (eða fyrr) ✅
- 1,5 mínútur af tímanum Glerá - Skíðahótel ❌
- 30 sek bæting upp Skautasvellsbrekkuna ❌
- Vera ekki droppaði í Íslands- og bikarmótum ❌
- Komast á pall í Orminum ❌
- Keppa til að hafa gaman ✅
Varðandi vatnsdrykkjuna þá var ég í rauninni ekki alveg viss um hvað ég ætti að setja þar inn. En þegar ég lít heilt yfir þá drakk ég alveg örugglega meira af vatni en í fyrra. Ég fæ mér t.d. oftast eina flösku af vatni áður en ég fæ mér fyrsta kaffibollann í vinnunni. Það hjálpar að koma hlutum í vana.
Liðkun og teygjur. Ég var duglegur fyrri part tímabils að teygja og gera upphífingar, magaæfingar og armbeygjur, en svo fór það á hliðina seinnipart tímabils og hjólaði bara og hjólaði. Í kjölfarið var ég farinn að finna aðeins til í öxlinni (sem brotnaði í fyrra), en nú þegar ég er byrjaður í ræktinni aftur, þá er það strax að lagast. Þetta sýnir hvað teygjur og styrkur eru mikilvægur hluti af þessu.
Long ride: Ég ætlaði að taka allavega 2 x 4 klst ferðir í mánuði til að byggja upp þolið og grunninn en ég bara náði óskaplega sjaldan að rífa 100 km múrinn. Ég ber fyrir mig tímaskort en það er kannski léleg afsökun.
FTP goal: Um daginn fór ég yfir 4,0 w/kg í FTP. Þetta var reyndar eftir ferð upp í Hlíðarfjall sem er svolítið svindl þar sem það er miklu auðveldara að halda vöttum upp í móti. Á móti kemur að ég var búinn að taka vel á því aðdragandanum og ekkert að sprengja mig þarna upp. Ég skrái þetta því sem "check".
Glerá-Skíðahótel: Ég ætlaði að bæta besta tímann minn frá Hálandabrekku og upp í Skíðahótel (Glerá-Skíðahótel) en breytti plani á síðustu stundu og tók lengra "segment", þ.e. alveg frá Hlíðarbraut og upp (Hringtor- Hlíðarfjall). Ég hafði aldrei prufað að keyra það segment á fullu gasi og sagðist myndi verða ánægður með 19 mínútur. Í leiðinni ætlaði ég að taka Glerá-Skíðahótel niður í 15:30. Þetta endaði með að ég fór lengra segmentið á 19:54 sem er 23 besti tími frá upphafi og tók G-S niður í 15:52- vantaði bara 22 sekúndur og var því grátlega nálægt.
Skautasvellsbrekkan: Ég reyndi aldrei almennilega við þetta segment í sumar- þannig er það nú bara.
Markmiðið um að vera ekki droppað var eftir á að hyggja aðeins of óljóst. Ég náði aldrei að komast með alveg fremsta hópi í mark en ég rak heldur aldrei lestina einn á auðum sjó. Þegar ég datt aftur úr hópi náði ég alltaf einhverjum hjólurum aftur og stakk þá stundum af. Get ekki sett "check" við þetta en er ekkert allt of ósáttur við framfarir frá fyrra ári.
Ég ætla ekki að væla meira út af Orminum en þar náði ég ekki markmiðinu.
Ég hafði sannarlega gaman að því að keppa í sumar þó maður sé alltaf stressaður fyrir mót.
Mótin og árangurinn þar
Hér er yfirlit yfir mótin sem ég er búinn að keppa í síðustu 2 ár og hvernig ég stóð mig. Í ár var ég í 16. sæti í stigakeppninni í bikarmótum en 41. árið áður (bara 2 mót 2022). |
Þegar ég horfi yfir sumarið þá var ég kannski með aðeins hærri væntingar, en á móti kemur að ég kom ekki með mikið sjálfstraust inn í sumarið. Mér fannst ég ekki eiga heima þarna og vera eins og geimvera. En ég sá það s.s. í fyrsta móti (Suðurströndin) að ég var í þokkalegu formi þrátt fyrir allt. Að ná mönnum aftur og droppa þeim gaf mér meiri kjark. Það var samt í rauninni ekki fyrr en í næstsíðasta mótinu (Kjós) sem ég lét almennilega vaða og þorði að vera fremst. Þar barðist ég þar til ég gerði afdrifarík mistök sem skildu mig frá fremsta hópi. Ég var fullur sjálfstrausts í Orminum þó ég hafi ekki náð markmiði mínu þar.
Power Profile grafið mitt þann 24. ágúst 2023 |
Nú er ég byrjaður í samtali við Ingvar Ómars um að þjálfa mig og vonandi gengur það eftir. Ég hugsa að ég biðji hann að hjálpa mér við að setja markmið fyrir næsta ár og set spurningamerki við að hafa sem markmið að bæta Strava segment. Það passaði aldrei inn í æfingaprógramið að reyna við þetta (tekur of mikið úr manni) og þegar keppnistímabilið var búið langaði mig bara til að hjóla og vera ekkert að spá í þessu. Að lokum var þetta farið að leggjast á sálina á mér og ég var endalaust farinn að velta fyrir mér hvort eða hvernig ég ætti að hjóla eða hvíla til að vera í standi fyrir þetta. Ég á pottþétt eftir að reyna að bæta einhverja tíma en langar bara til að kýla á það þegar þannig liggur á mér.
Nú ætla ég að fara að hætta þessu og ætla að ljúka þessu með þeim orðum að heilt yfir náði ég ekki markmiðum mínum þó ég taki margt jákvætt út úr sumrinu. Og ég er fullur tilhlökkunar að setja ný markmið og byrja að æfa aftur.
Ummæli