Vikan og næstu orustur

Harpa að hjóla á Hlíðardal, Námafjall í baksýn.

Við Harpa og börnin áttum fínustu daga í Mývatnssveit um helgina, hæfileg blanda af slökun og hjóleríi. Við fengum eiginlega alveg ótrúlega gott veður en það var s.s. ekki úr háum söðli að detta. Á laugardaginn var stafalogn um morguninn og hiti á bilinu 12- 14°C. Við hjóluðum upp í Kröflu og til baka. Harpa var að taka tempó-æfingu en ég fylgdi bara á eftir og reyndi að halda mér frekar róelgum. Við fórum svo í sund á laugum seinnipartinn og svo elduðum við 3 heila kjúklinga ofaní mannskapinn um kvöldið.

Túristi í eigin landi.

Á sunnudaginn tókum við svo hringinn í kringum vatnið með viðkomu í Dimmuborgum. Stafalogn annan daginn í röð og ekki svo mikið af flugu. Umferðin var frekar róleg og svo mikil tilbreyting að geta léttilega haldið +30km/klst án þess að vera að mænuslíta sig.

Í gær (mánudag) var styrktarsamhjól Akureyrardætra og við hjóluðum með hópnum fram að Hrísum þar sem við borðuðum grillaðar pylsur, smt. 65 km. Það var meðvindur út á Hrísa og maður þurfti að hafa lítið fyrir hlutunum í stórum hópi. Við Harpa vorum svo bara 2 saman á leiðinni til baka og ég púllaði alla leiðina til baka. Það endaði sem klukkutími á tempó og það var held ég bara ágætis æfing. Ég allavega finn aðeins fyrir þessu í dag.

Staðan á Training Peaks

Ég er búinn að hjóla frekar mikið upp á síðkastið og kominn nokkuð langt fram úr plani. Á móti kemur að megnið af þessu hefur verið endurance. Ef veðrið verður gott um helgina tek ég eflaust aðeins fleiri langa túra en í næstu viku fer ég að skera niður og auka ákefðina aftur. Átján dagar í Orminn.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap