Tvær flugur í einu höggi.

Segment dagsins- frá Hlíðarbraut upp í Skíðahótel (blátt). Topp 10 listi ársins en ekki "All Time".


Vaknaði eldsnemma í morgun, fékk mér staðgóðan morgunverð og hlammaði mér svo hér í sófann til að setja smá á blað um verkefni dagsins. Eftir vinnu ætla ég að taka PB tilraun upp í fjall- með smá tvisti.

Upprunalega ætlaði ég að bæta tímann minn  Glerá - Skíðahótel um eina og hálfa mínútu í sumar og fara úr 17:00 niður í 15:30 og þar með fara á topp 20 lista yfir hröðustu tíma frá upphafi þar upp. 


Glerá - Skíðahótel, þarna sést að segmentið (blátt) byrjar mun seinna en hitt.


Málið er hinsvegar að flestir sem eru að horfa á bestu tímana  upp í fjall eru að horfa á lengra segment, þ.e. alveg frá Hlíðarbraut og upp. Ég ætla því að freista þess að gera eins vel og ég get alla leið upp á sama tíma og ég reyni að ná tímanum mínum Glerá - Skíðahótel niður um 1,5 mínútur í leiðinni. Ég hef ekki hugmynd um hvort eða hvernig þetta mun ganga.

Eins og ég set þetta upp þá ætla ég að taka 20 - 30 mínútna upphitun með smá brekkum til að koma mér í gang. Ég ætla að éta banana og gel áður en ég fer út og henda í mig öðru geli þegar ég legg af stað. Ég verð ekki með síma, engin aukaföt og engan vatnsbrúsa. Ég reyni að vera eins léttur og hægt er.

Planið er svona:
  • Ekki byrja of skarpt
  • Reyna að vinna frekar meiri tíma inn á seinnipartinum
  • Í minni halla verð ég sitjandi og reyni að halda mig í kringum 250- 260 vött
  • Í meiri halla stend ég upp og reyni að pumpa 300 vöttum
Ef þetta er minn dagur verð ég sáttur við að vera í kringum 19:00 mínútur en ég er að renna blint í sjóinn og hef í rauninni aldrei reynt að ná svona löngu segmenti.

Ég er líka að spá í að fela gluggann sem sýnir "lap time" svo ég missi ekki móðinn ef þetta fer að ganga illa. 

Gangi mér vel.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Góðan daginn öll

Kylfingur spjall

Negri í Þistilfirði