Tvær ágætar æfingar

2 x 20 mínútna threshold upp í Skíðahótel í dag. Alltaf gaman að negla vöttin svona nákvæmlega.

Ég er búinn að taka tvær æfingar síðan ég fór í styrktarsamhjólið og ég er bara nokkuð ánægður með þær miðað við hvað ég var eitthvað flatur og þreyttur þegar ég fór af stað.

Í gær tók ég einn Eyjó og endaði á að taka 5 x 1mín spretti á 400 - 480 w í brekkunni upp að Leifsstöðum. Ég var að drulla á mig alveg fram að sprettunum en lét á þetta reyna og var bara nokkuð ánægður. Æfingin var 38 km í heildina, 951 cal og 110 TSS.

Ég er búinn að skipta út orkugeli á erfiðum æfingum fyrir nammi-gúmmí. Þetta er að virka ágætlega en það fer ægilega í taugarnar á mér hvað maður er lengi að japla á þessu og koma þessu niður. Maður þarf helst að stoppa og vont að gera þetta undir álagi. Þetta er miklu ódýrara og gerir það sama, en ég veit ekki alveg hvort ég nenni þessu.

Í dag ákvað ég svo að taka 2 x 20 mínútna threshold á ca. 250 w upp í Skíðahótel. Það var eins í dag eins og í gær, ég var þreyttur þegar ég byrjaði. Eftir upphitun stoppaði ég við hringtorgið upp við Réttarhvamm, úðaði í mig smá Haribo gúmmi og drakk smá kolvetnablöndu. 

Þetta byrjaði frekar hægt hjá mér en þegar ég var ca. hálfnaður upp í fjall fór ég að komast í gang. Ég var búinn að ákveða að hafa þetta frekar þægilegt og stóð við það. Í seinni ferðinni leið mér ennþá mjög vel og þurfti að sitja á mér að fara ekki að hamra á pedalana. Púlsinn fór sjaldan upp í 160 og mér fannst ég eiga mikið inni. Æfingin var 30 km, 922 metra hækkun, 980 cal og 98 TSS.

Þegar ég hlóð upp æfingunni þegar ég kom heim sá ég svo að þrátt fyrir að vera að hafa þetta "rólegt" þá var ég nálægt bestu tímunum mínum og fékk meira að segja 2 PR fyrir ákveðin segment. Þetta finnst mér boða gott fyrir komandi tilraun í að bæta besta tímann minn þarna uppeftir og ég hlakka til að reyna þó það verði náttúrulega ógðeslega vont. Það geri ég eftir Orminn þegar ég verð bara farinn að leika mér.

Ég er búinn að vera að vinna fram til klukkan 13 á daginn þessa vikuna og ég hef ekkert verið að éta neitt af viti fyrir hádegi. Ég velti fyrir mér hvort það geti verið skýringin á að ég hafi verið svona kraftlaus í upphæfi æfinga og ætla að taka með mér meiri mat á morgun.

Æfing morgundagsins er 2 tíma endurance á Z1/Z2, þægilegt og gott.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap