Staðan
Á meðan ég var enn á lífi. |
Nú er rykið aðeins farið að setjast eftir Orminn og ég er hættur að fá þessi þrálátu endurlit af mómentinu sem ég áttaði mig á því að ég væri í djúpum skít og hefði leikið af mér. En maður veit ekkert hvað hefði gerst og óþarfi að pína sig of mikið. Ef og hefði..... En kannski er það góðs viti að mér sé ekki alveg sama og sé ennþá staðráðinn í að bæta mig og gefast ekki upp. Ég er byrjaður að taka saman uppgjör fyrir árið en birti það sennilega ekki fyrr en ég hef gert atlögur að PB fyrir Skautasvellsbrekkuna og Hlíðarfjall. Síðan er ég að gæla við hvort ég reyni að ná kórónunni fyrir brekkuna upp í gegnum Kjarnaskóg.
Ég er búinn að hjóla rúmlega 80 km síðsutu 2 daga og kannski óþarflega hart ef ég ætla að reyna að fara í einhverjar PB bætingar. En ég var s.s. búinn að ákveða að hjóla eins mikið og mig langaði ef veður væri gott. Ég er búinn að hjóla að meðaltali 32 km/dag þennan mánuðinn og það er mjög svipað og ég hef verið að gera í sumar. Mánðurinn mun enda í einhverjum 1000 km. Þetta er s.s. ekki mikið miðað við marga en þetta snýst heldur ekki bara um magn heldur líka gæði.
Ég er aðeins búinn að eiga í samtali við líkamann í dag og spyrja hann hvort hann sé í stuði fyrir Hlíðarfjall í kvöld en hann er ekki búinn að svara. Hann veit hvað þetta verður ógeðslega vont.
Go-to race carb load. Fljótleg, ódýrt og gott. |
Matarvaktin
Grænmetisbuff, kjúklingur, salat, spínatdrykkir, kotasæla, epli, brauð....... þetta er svona það sem ég man eftir að hafa gluðað í mig síðustu daga. Þetta hefur s.s. verið með skárra móti og ég hef ekki haft mikla löngun í að sukka. Þyngdin á mér hefur staðið í stað síðustu vikur þó maður rokki upp og niður um 500 gr. til kíló sem er eðlilegt. Harpa er að vinna í kvöld og ég hugsa að ég fái mér bara eitthvað létt og þægilegt og svo ætlum við að nýta okkur Megaviku Dómínós á morgun.
Hendi hérna inn fyrir ofan mynd af því einfaldasta og þægilegasta sem maður eldar þegar mann vantar smá kolvetnaskot fyrir mót eða erfiðar æfingar. Tagliatelle, grænt pesto (með ítalska fánanum í Bónus), steiktar bringur og parmesan yfir. Við étum stundum sama kombó með soðnum fiski líka.
Ummæli