PB í fjallið og geggjað samhjól á sunnudegi ☀️

Frábær hópur á Fosshóli. Myndin er "screen shot" af Strava og því í lélegum gæðum.

Ég byrja á öfugum enda- í samhjóli sem var í gær, sunnudag. Við fórum frá Hofi 26 manna hópur og hjóluðum í Fosshól þar sem við fengum súpu, kaffi og kökur. Við Harpa héldum okkur í fremsta hópi mest allan tímann og það var þokkaleg keyrsla. Ég notaði líka tækifærið og tók ágætlega á því upp Víkurskarðið í báðar áttir. Ég var ekkert að klára mig en bætti samt bestu tímana mína þarna upp sem var alveg gaman. En þetta var að öllu leiti frábær ferð, félagsskapurinn góður og það rættist ótrúlega úr veðrinu. En ég verð líka að viðurkenna að ég var þreyttur eftir þetta í gær og eins og haugur í vinnunni í dag.

Ferðirnar mínar frá Hlíðarbraut upp í Skíðahótel síðan 2017. Það er alveg stígandi í þessu.

Á föstudaginn gerði ég atlögu að fjallinu eins og ég kom inn á í síðasta pistli. Ég talaði um að ég yrði sáttur við 19:00 mínútur (alla leiðina) en ég náði því ekki alveg. Þessi tilraun kom mér samt á all time 25 listann og ég held að það sé nú bara alveg sæmilegt. 

Markmiðið mitt um styttra segment-ið (Glerá - Skíðahótel) náðist ekki heldur og mig vantaði 22 sekúndur upp á það. Ég veit alveg að ég hefði náð því ef ég hefði bara tekið það eitt og sér og ætla mér að klára það af fljótlega þar sem það var annað af aðalmarkmiðum ársins.

Annars leið mér þokkalega við þessa tilraun og hélt nokkurnveginn plani. Var á +300 vöttum standandi í mesta hallanum en settist svo niður og reyndi að halda +250 vöttum þess utan. Það var reyndar drullu heitt (yfir 20°C) og það var ekkert að vinna með mér. Hjartslátturinn fór fljótlega yfir 160 og hélt svo bara áfram að hækka. Þegar ég kom upp á plan (og henti mér í jörðina) við Skíðahótelið var ég kominn í 178 púls sem er það hæsta sem ég hef séð á hjólinu. 

Að lokum, áður en ég fór af stað þá steig ég á viktina og það lítur út fyrir að ég sé heilum 2 kílóum þyngri en ég var á sama tíma í fyrra og ætlað að vera núna. Það kostar sitt að vera með 2 kíló í farangrinum þegar maður er að fara upp á við og ég þarf aðeins að passa mig ef ég ætla að gera fleiri atlögur að brekku-segmentum þetta árið.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap