Matarpælingar

Kvöldmaturinn í kvöld var bæði hugsaður út til að vara hollur og til að spara. Ávextir, egg og hafragrautur með hnetusmjöri og rúsínum. Prótein, fita, kolvetni, trefjar og fullt af vítamínum.

Mataræðið hefur verið skánandi hjá mér upp á síðkastið eftir heldur mikið sukk í sumarfríinu. Ég hef verið að léttast hægt og rólega en ég er líka búinn að bæta jafnt og þétt í æfingar sem gæti haft sín áhrif. Ég hef sem fyrr einbeitt mér að því að borða "í kringum" æfingarnar. Fara vel kolvetnahlaðinn af stað og passað mig á því að fá mér alltaf að borða þegar ég kem heim. Þetta minnkar líkurnar á því að maður missi sig í eitthvað rugl á kvöldinn og gefur manni orku til að klára æfingarnar skammlaust. 

Ég borða sem fyrr alltaf eitthvað hollt alla daga og passa að ég fái kolvetni, fitu og prótein. En síðan hefur maður aðeins verið að missa upp í sig nammidrasl og snakk, sérstaklega þegar maður hefur tekið erfiða æfingu. Þá segir maður við sjálfan sig að maður hafi hvort sem er brennt svo miklu að þetta skipti ekki máli. Ég tek líka óþarflega hraustlega til matar míns oft á tíðum og ligg afvelta. Ég held að það geti ekki verið hollt.

En það má segja að leiðarstefið í mataræðinu hjá mér sé:
  1. Eitthvað hollt alla daga
  2. Máltíð er ekki bara kolvetni 
  3. Stór morgunmatur
  4. Það má borða nammi og kökur
Ég set fjórða liðinn inn þar sem ég hef svo oft brennt mig á að fara í einhverja glórulausa kúra sem aldrei með öðru en að maður missir algerlega stjórn á sér og springur á limminu. Samband mitt við mat er orðið mikið heilbrigðara og ég ét 5-6 sinnum á dag.

Þyngdin á mér síðustu 730 daga.

Þó ég sé enginn atvinnumaður í hjólreiðum þá var ég með það að markmiði að koma mér niður í 63 kg fyrir keppnirnar í sumar. Núna man ég eiginlega ekki hvaðan ég greip þá tölu en dettur helst í hug að ég hafi gert það vegna þess að ég var í 63 kg í Orminum í fyrra og þá leið mér alveg hrikalega vel og var öflugur.

Einn af kostunum við að nýta sér Training Peaks er öll skráningin sem maður hefur þar inni. Fyrir ofan má sjá þyngdina á mér síðustu 730 daga. Ég byrja í kringum 67 kg (janúar 2022), hryn svo niður í 63 í maí sama ár en lendi þá í að brjóta á mér viðbeinið. Ég bjóst við að þyngjast mikið við að hætta að hjóla en sú varð nú ekki raunin. Þvert á móti hrundi ég niður í 60 kg! Líkaminn hefur væntanlega sett einhverja orku í að lagfæra skemmdirnar og svo rýrnaði ég, sérstaklega lappirnar. Í ágúst í fyrra er ég svo kominn aftur upp í 63 kg en fer þá í off season og lyfti mikið. Þá fer ég yfir 66 kg en hef svo verið að þokast niður aftur þrátt fyrir að éta mun meira en árið áður.

Í morgun var ég 64,4 kg (ekki skráð) og ef ég reikna með að ég verði á bilinu 63,5 - 64 kg. þegar ég keppi í Orminum um þarnæstu helgi. Ég held að það sé bara mjög gott og ég verð þá væntanlega í ca. 4,2 w/kg. 

Þegar ég byrjaði þennan pistil ætlaði ég að vera með einhverjar djúpar pælingar um næringasamsetningu og sparnað en það rann einhvernveginn út í sandinn. En ég er allavega pakksaddur núna en samt staðráðinn í að fá mér popp yfir sjónvarpinu í kvöld. Ég á það skilið.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap