Mission accomplished!

FTP gildin mín úr Garmin.

Það er gaman að ná markmiðum og ekki síst ef það gerist óvænt. Í gær hjólaði ég Eyjafjarðarhring og fór í leiðinni í gegnum Vaðlaheiðarhverfið til að fá smá aukahækkun. Þegar ég var búinn að því ákvað ég að skella mér upp í Skíðahótel. Áður en ég lagði af stað upp frá hringtorginu við Glerá, þá kláraði ég vatnið mitt, tók eitt gel og fór úr vettlingum og vesti svo mér yrði ekki of heitt. Ég var í ágætu standi en samt farinn að lýjast aðeins, enda búinn að hjóla í rúmlega 1,5 klst. Ég ákvað að reyna að halda mér í kringum 250 vött sem á að skila mér upp eftir á rétt rúmum 20 mínútum.

Mér leið alveg prýðilega frá upphafi og var yfirleitt á rúmlega 250 vöttum. Öðru hvoru stóð ég upp og skipti niður um 3 gíra en passaði mig að láta púlsinn aldrei fara of hátt. Settist þá niður aftur og reyndi að ná honum undir 160 bpm. Í lokin gaf ég reyndar aðeins í tók 3 mínútur á rúmlega 300 vöttum og var orðinn ansi móður þegar ég kom upp á plan.

VO2 Max úr Garmin, ég hef aldrei verið svona hár.

Þegar ég kom heim og vistaði æfinguna fékk ég svo skilaboð um að bæði FTP-ið mitt og VO2 Max hefðu hækkað. VO2 Max fór úr 62 upp í 65 og FTP-ið mitt rauk upp í 265 sem skilar mér rúmlega 4W/kg. Eitt af markmiðum mínum fyrir sumarið var að fara upp í þessa tölu í ágúst og nú er ég búinn að ná því og það án þess að hafa neitt sérstaklega verið að reyna að bæta besta tímann minn. En á leiðinni upp í fjall hélt ég 279 vöttum í 20 mínútum og 95% af því eru 265 sem reiknast sem nýtt FTP.

It is claimed that a 4w/kg FTP is comparable to a sub-three hour marathon. Robert de Castella once said that the sub 3 hour marathon was the difference between a runner and a jogger. So it is that many club level cyclists have the goal of being able to achieve a functional threshold power (FTP) of 4W/kg.

Set hér inn að gamni Power Profile úr Training Peaks. Ég þyrfti augljóslega að bæta 5 sekúndna power hjá mér en ég hef s.s. aldrei reynt að taka neina max spretti. 

Ef ég skoða heildarmyndina og ber helstu tölur saman við árið á fyrra þá er ég á uppleið. Stundum hef ég verið óþolinmóður og á barmi þess að breyta æfingaplaninu og fara að panikka. En aðalatriðið er að ég hef alltaf haldið áfram, hlustað á líkamann og horft á stóru myndina. Ég er kominn í hrikalega gott form og þarf að spila vel úr spilunum fram að Orminum svo ég verði ekki búinn að toppa og orðinn þreyttur.

Brynleifur að taka mynd í hjólaferðinni okkar 2019. Við stefnum að því að fara sömu leið og nú hefur Dagbjört bæst við.

Annars er ég búinn að taka mig og börnin til fyrir hjólaferð og við leggjum af stað um kl. 16:00 í dag. Stefnum að því að fara í Lindina og fá okkur hammara og lenda í Kristnesi að tjalda um kvöldmatarleitið. Á morgun förum við í sund í Hrafnagili og hjólum svo í Leyningshóla. Á laugardaginn böðum við okkur í Hólsgerðislauginni (ef við fáum leyfi) og svo læt ég sækja börnin. Þið getið fylgst með á FB og Insta.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap