KIA GULL - meira bull
Á ráslínu. Mynd: Ívar Sæland |
Ég er aðeins búinn að vera að skoða hvað betur hefði mátt fara hjá mér í síðustu keppni. Þegar ég skoða "power-fælinn" á Training Peaks fyrir og eftir að ég missti af fremsta hópi þá eru meðalvött og meðalpúls nokkuð svipuð. Hinsvegar eru toppar í vöttunum áður en mér var droppað og ég er með miklu hærra Normalized Power (286 vs 242). Variability Index var 1.2 fyrsta hálftímann en er svo 1,03 restina af keppninni. Það er mælikvarði á hversu stöðugt maður hjólar, því hærra frá einum, þeim mun meiri rykkir og læti.
Það sýnir að ég var alltaf að þurfa að bregðast við hraðabreytingum og fara reglulega yfir 500 vött sem er ekki sjálfbært til lengri tíma. Þá er maður að brenna eldspýtum.
Power-file úr Training Peaks. Skyggða svæðið eru vöttin áður en ég missti af fremsta hópi. |
Eftir að ég hafði þurft að vera að taka alla þessa toppa lendi ég svo í að ná ekki að halda í við hópinn í stuttri aflíðandi brekku og þarf að fylgja því eftir með 6 mínútna VO2 max efforti á tæplega 300 vöttum. Þá reyndar náði ég hópnum en svo kom strax aftur hraðabreyting og þá var ég tómur í bili. Eftir að ég fór að vinna með Stefáni Geir og félögum í framhaldinu þá dett ég í ryþma, jafna mig og átti nóg inni í lokin. Það mikið að ég er ógeðslega svekktur að hafa ekki áttað mig á því að endamarkið væri að koma. Reynsluleysi og klaufaskapur.
Miðað við framfarirnar hjá mér á æfingum þá held ég að ég gæti verið að ná betri úrslitum ef ég væri snjallari í hópnum og öruggari með mig. Að vera droppað á sér oft skýringar í því hvað gerðist áður en manni var droppað frekar en að það sé endilega að maður sé ekki nægilega sterkur. Ég þarf að halda áfram að reyna að læra að vera vel staðsettur, spara orku og vera snjall. Það er meira en að segja það.
Að lokum; taka það jákvæða út úr þessu. Þrjú mót í ár, ég færist ofar á töflunni og sýni stöðuleika.
Um næstu helgi er komið að þriðja og síðasta bikarmóti. Ég er ekki spenntur fyrir brautinni og ætla að létta af mér pressunni með að fara inn í það mót með engar væntingar. Einu væntingarnar eru að það verði gaman að hitta strákana og vera með. Og svo væri ekki verra ef veðrið væri sæmilegt.
Ummæli