Hjól og rækt!
Tími í Norður, ég hef aldrei svitnað svona mikið á ævinni. |
Skv. plani á þetta að vera róleg vika hjá mér og það er alveg óhætt að segja að ég sé ekki að FTFP (Follow The Fucking Plan).
Í gær hjólaði ég frekar rólega út í Hrafnagil og til baka og var svo búinn að ákveða að ná einni kórónu (KOM, King Of the Mountain) á segment-i sem ég bjó til fyrir ca. 2 árum og ég held mikið upp á. Það byrjar við Amtbókasafnið, fer upp Oddeyragötu, beygir upp Hamarstíg þar sem það verður býsna bratt og endar við Þórunnarstrætið. Gunnar Atli tók þessa kórónu af mér fljótlega eftir að ég bjó til segmentið og ég hef aldrei reynt að ná henni aftur en vissi að ég ætti alveg að geta það.
Oddeyrarg/Hamarst Climb. |
Ég vil nú byrja á því að taka það fram að það eru fáir sem vita um þetta segment og ekki margar kanónur á listanum. En það er alltaf gaman að fá kórónu og nú er bara að sjá hvað ég fæ að halda henni lengi. Ætlunin var að ná henni í fyrstu tilraun og bæta svo við 4 ferðum í viðbót. En eftir að hafa tekið 2,5 ferðir þarna upp var ég alveg orðinn grillaður og lét gott heita.
Við malbiksenda. Veðrið frammi í fyrði var ekki upp á marga fiska en við erum víst orðin vön því. |
Í morgun vöknuðum við Harpa klukkan 08:00 til að ná hjólaæfingu fyrir hádegistíma í ræktinni. Við hjóluðum inn að malbiksenda austanmegin og svo í gegnum Hrafnagil til baka. Harpa var að taka over/under æfingu en ég að dútla á Z1/Z2 á eftir henni. Ég hef oft verið ferskari en þetta slapp alveg og við vorum tæpa 2 klukkutíma á ferðinni.
Harpa var svo búin að fá leyfi til að taka með gest í tíma í Norður og það var úthaldstími í heitum sal. Ég hef aldrei áður farið í svona heitan tíma og ég verð að viðurkenna að ég var alveg að grilla mig. Þetta voru allskonar æfingar; armbeygjur, planki, djöflapressa, hnébeygjur sem við rúlluðum í gegnum nokkrum sinnum og hitinn í salnum tæplega 40°C. Ég var að niðurlotum kominn þegar þetta var búið og eins og sést á myndinni hérna efst uppi þá var eins og maður hefði hent sér í sundlaug. En það var ótrúlega gaman að fara saman í ræktina og ætli maður endi ekki með að kaupa sér kort í Norður fyrir veturinn.
Á morgun stendur svo www.pedal.is fyrir óformlegri keppni sem byrjar við Leirunesti. Hópurinn rúllar saman í rólegheitum þangað til beygt er inn á Eyjafarðarbraut á Leiruveginun þar sem er fljúgandi start og keppni hefst. Farið er suður að Laugalandi, þar yfir hjá Hrafnagili og endað við flugvöllinn. Ég veit ekki alveg hverjir munu mæta en ég ætla að gera mitt besta að hanga í fremstu mönnum.
Hjólið er komið frá lækni. |
Ég verð s.s. eiginlega búinn með áætlaðan tímafjölda af æfingum á morgun (miðvikudag) en ætla samt að hjóla slatt í Mývatnssveit um helgina ef veður leyfir. Ég reyni svo að gíra mig aðeins niður 2 vikum fyrir mót. Það er bara allt of gaman að hjóla til að sleppa því þegar eitthvað fjör er í boði.
Að lokum, þá var hringt í mig úr Útisport og mér tilkynnt að búið væri að setja nýjan afturskipti á hjólið. Þetta var einhver bilun í tölvukerfi og þetta er væntanlega í ábyrgð. Þeir rifu afturskipti af einhverju nýju hjóli en ég fæ sennilega að hafa þennan bara áfram og þeir setja svo nýjan undir hitt hjólið. Vonandi gerist þetta ekki aftur.
Ummæli