Grenjum aðeins saman út af veðurspánni
Ég bauð liðinu á Sushi corner, uppáhaldsstað Dabjartar og Brynleifs. |
Þetta er önnur tilraunin mín til að blogga í vikunni en ég var að henda hinu draftinu, enda orðið úr sér gengið. Pabbi og Hafrún eru búin að vera hérna síðustu daga og við fengum börnin lánuð hjá Guðrúnu. Veðrið var ömurlegt allan tímann og því snérist allt um að skoða söfn og fara út borða. Við Harpa buðum líka heim í mat. Þetta var voðalega yndælt og nú eru þau gömlu farin á Patró.
Æfingar vikunnar hafa gengið ágætlega en veðrið hefur ekki boðið upp á mjög langa túra. Ætlunin var að skrúfa aðeins niður á ákefðinni og taka lengri æfingar en það verður að bíða eitthvað. En ég er s.s. búinn að taka 2 gæða æfingar í vikunni; eina 30/30 og eina over/under. Við það bætist ein tveggja tíma endurance og tveir hlaupatúrar. Ég verð að passa mig að vera ekki búinn að brenna mér upp þegar Ormurinn er eftir 4 vikur.
Æfing dagsins var over/under sem ég tók í Veigastaðabrekkunni. |
Hér er svo æfing dagsins sem snýst um að byrja sprett á VO2 max í 30 sekúndur til að safna upp smá laktati en svo dettur maður niður í threshold í 4 mínútur en endar settið á að taka sprett aftur í 30 sekúndur. Hugmyndin er að reyna að venja líkamann við að díla við súrnun (laktat) undir miklu álagi. Þetta er það sem gjarnan gerist í keppni, maður þarf að bregðast við árás eða fara upp brekku en samt geta haldið uppi afli og koma laktatinu inn í frumurnar. Langar endurance æfingar þjálfa hinsvegar hvatberana í að nýta þetta laktat inni í frumunum sem eldsneyti. Þetta þarf allt að haldast í hendur.
Á morgun er svo löng endurance æfing en ég er ekki búinn að setja upp næstu viku. Vonandi verður veðrið skárra.
Ummæli