Æfingakeppni
Það var fín mæting í "Keppnis-Eyjó" pedal.is í gær. |
Ég verð að viðurkenna að ég var býsna spenntur fyrir þessari æfingakeppni sem var í gær og staðráðinn í að vera með fremstu mönnum og gera mitt besta. Ég nálgaðist þetta eins og alvöru keppni, hvíldi vel fyrripart dags, át graut 2 tímum fyrir start, tók með mér gel og allan pakkann. En það endaði samt svo að ég var ekki með lappir í þetta í gær og var pínu súr þegar ég fór heim. Stundum er það bara þannig.
Hérna er ágætis yfirlit yfir segmentið (keppnisbrautina) og er það litað með bláum. |
Ég var búinn að fara aðeins yfir hvernig þessi keppni virkar í síðasta bloggi. Startað við Leirunesti, allir hjóla rólega að Eyjafarðarvegi og þ
d
Ummæli