Mid Season Break
Bremsuklossarnir úr afturbremsunum á Giant hjólinu. |
Ég ákvað að taka ATP-inu mínu á Training Peaks hátíðlega og
er í fríi á hjólinu alla vikuna. Þetta er þriðji dagurinn núna í röð og ég verð
að viðurkenna að þetta er betra en ég hafði búist við. Reyndar kemur smá
tómleikatilfinning eftir vinnu og maður veit ekki alveg hvað maður á af sér að
gera. Sérstaklega núna þegar veðrið er loksins að orðið gott. En ég veit að ég
er að gera mér gott með þessu og þetta hjálpar eflaust til að vera ennþá í fínu
standi í lok ágúst. Eins og ég hef komið inn á þá hef ég ekki slakað á svona
lengi í næstum því heilt ár. Í "fríinu" mínu haust fyllti ég upp í fjarveruna af hjólinu með hlaupum.
En ég fletti upp á netinu að gamni "mid season break cycling" og komst að því að það er býsna mikið skrifað um það. Þetta er nú kannski algengara hjá þeim sem eru í þessu af meiri alvöru en ég en þrátt fyrir fáar keppnir það sem af er ári hjá mér, þá er ég búinn að taka vel á því.
This is guilt-free recovery that will yield significant results. You’ve trained and raced hard. You deserve this break and you’ll be faster for having taken it.
Þegar ég fór í crit-keppnina á sunnudaginn var komið eitthvað skrítið hljóð í hjólið hjá mér. Ég hafði engan tíma til að spá of mikið í því og hélt að bremsurnar hefðu bara eitthvað aflagast smá. Þegar keppnin var búin tók ég eftir að afturdekkið stoppaði um leið ef ég snerí því. Þegar ég kom svo heim reif ég klossana úr og þeir voru gjörsamlega handónýtir. En þetta er til í Útisport og lítið mál að kippa þessu í lag.
Annars er ekkert af mér að frétta. Ég reyni bara að njóta þess að vera í fríi og er duglegur að teygja, gera upphífingar og armbeygjur. Og að sjálfsögðu ét ég hollan mat, bæði í hófi og óhófi. Það var stór stund hjá mér áðan þegar ég fékk mann til að mæla fyrir gluggatjöldum hjá mér. Ég er búinn að búa hérna í 3 ár og lifa við það að sjá ekki á sjónvarpið þegar kvöldsólin skín. Þetta hefur pirrað mig lengi en ég alltaf fundið eitthvað annað til að eyða peningunum í. Núna er peningastaðan fín og því um að gera að láta vaða.
Orbea Oiz |
Talandi um að eyða peningum.... eftir að hafa fengið þá flugu í höfuðið að gaman gæti verið að fá sér XC hjól þá er ég búinn að liggja aðeins yfir þessu. Núna er ég alvarlega að hugsa um að reyna að fá mér eitt fyrir næsta sumar og uppfæra hjólið hans Brynleifs í leiðinni. Þá gætum við farið að djöflast saman í skóginum. Hvernig það svo kemur út með ferð til Tenerife verður svo bara að koma í ljós. Kannski hefði ég bara átt að hafa áfram sól í stofunni hjá mér?
Ummæli