Erill
Frá Suðurstandarveginum 2022 |
Minnismiði er orð vikunnar. Ég er búinn að vera það upptekinn að ég hef gert mér minnismiða í Notes (ég er Notes-perri) þar sem ég haka við þegar ég er búinn með einhver verkefni; eins og vinna, versla, þrífa osfv. Álagið í vinnunni er orðið subbulegt og ég er kominn með vöðvabólgu í fyrsta skipti í mörg ár.
Ég er að leggja af stað til Reykjavíkur á föstudagsmorgun og á ennþá eftir að hnýta einhverja lausa enda. Þetta sleppur vonandi allt að lokum en ég hefði viljað getað farið aðeins rólegri inn í þetta fyrsta mót. Stress og andleg þreyta hafa mikið að segja.
Ég var búinn að ætla að skrifa eitthvað um undirbúninginn fyrir þetta mót síðustu vikuna en ég hef bara eiginlega hvorki haft tíma til að undirbúa mig eða blogga. Þannig er það bara.
Annars tók ég frí á mánudag, erfiða æfingu með HFA á þriðjudag (ég ákvað að vera með á hópæfingum í sumar). Hvíld í gær og svo æfing með hópnum sem ég ætla að taka rólega. Ferðalag og hvíld á morgun.
Var að kíkja á HRÍ síðuna og sé að við erum orðnir 22 skráðir, 4 fleiri en í fyrra. Þá var mér droppað og ég endaði síðastur. Ég ætla ekki að láta það gerast aftur. Ég kannast við nokkur nöfn þarna og veit að þeir eru margir massa hjólarar sem hjóla 10-14 klst í viku. Aðrir eru wild-cards. Ég geri mitt besta.
Ummæli