Yfirfarin markmið

Var smá tíma að finna mynd sem passaði við færslu um markmið. Ferðin mín á hálendið var risamarkmið sem í upphafi virtist fjarlægt, jafnvel órhaunhæft. En ég kláraði það. Þessi mynd er tekin eftir mikinn hildarleik undir Tugnafellsjökli í vatnavöxtum. Ég lærði mikið á þessari ferð.

Ég er búinn að vera að humma það fram af mér að klára markmiðin mín fyrir árið 2023. Ég var farinn að flækja þetta óþarflega mikið fyrir mér og markmiðin voru orðin of mörg. Til að ná árangri til lengri tíma er betra að gera færri breytingar í einu og festa þær frekar í sessi. Ég er búinn að læra mikið síðan ég setti mér markmið fyrir síðasta ár og það verður spennandi að sjá hvernig mér gengur að ná nýju markmiðunum.

Til upprifjunar er pistill hér um hvernig maður setur sér markmið.

Markmið ársins 2023

Process goals
  1. Drekka meira vatn
  2. Liðkun og teygjur
  3. Long ride
Performance goals:

  1. 4 w/kg í ágúst (eða fyrr)
  2. 1,5 mínútur af tímanum Glerá - Skíðahótel
  3. 30 sek bæting upp Skautasvellsbrekkuna

Outcome goals:

  1. Vera ekki droppaði í Íslands- og bikarmótum
  2. Komast á pall í Orminum
  3. Keppa til að hafa gaman
Vatn
Ég er kaffiþambari dauðans og hef verið að berjast við að minnka kaffidrykkjuna. Það gengur svona og svona. Ég ætla ekki að setja nein markmið með að hætta í kaffinu en ætla að reyna að drekka meira vatn. Tvö auka glös þegar ég vakna og 2 aukaglös seinnipartinn. Ég nenni ekki að fara að tína til fróðleik um ávinning vatnsdrykkju fyrir heilsuna, en þetta lítur út fyrir að vera rökrétt skref.

Liðkun og teygjur
Þegar ég fór í bike-fit sagði Siggi mér að vera duglegur að losa um mjaðmirnar og teygja vel. Það var eitthvað smá ójafnvægi milli hægri og vinstri sem hann taldi stafa af stirðleika, sérstaklega í vinstri mjöðm. Stefán sjúkraþjálfari sagði mér líka á sínum tíma að ég væri að verða of stirður í mjöðmum. Ef ég verð duglegur við þetta bætir þetta líðan mína á hjólinu, gerir mér kleift að halla mér meira fram (en samt skila afli og vera skilvirkur) og minnkar líkur á meiðslum. Þetta er líka bara spurning um að halda hreyfifærni og almennri vellíðan í framtíðinni.

Long ride
Það kann að skjóta skökku við en eftir að ég fór að hjóla úti í fyrra þá fækkaði þeim skiptum sem ég tók 3-4 klst túra. Stundum var ég að hjóla með Hörpu, stundum skellti maður sér í samhjól (sem var of stutt og/eða allt of hratt) og stundum var maður einfaldlega tímabundinn. Já og beinbrotinn á köflum. Í ár ætla ég að hjóla 4 klst túr allavega 2 í mánuði. Hér er smá fróðleikur um hvað maður fær út úr þessum löngu rólegu túrum.

Önnur markmið skýra sig að mestu sjálf. Síðasta markmiðið er kannski pínu loðið en ég er staðráðinn í að mæta í bikar- og Íslandsmót með litla sem enga pressu á herðunum. Ég ætla að reyna að nálgast þetta sem bara venjulegt samhjól og vera ekki að hugsa um úrslitin. Ég þarf að ná að vera rólegri þegar ég mæti í keppnina og minnka stressið dagana á undan (yfirleitt hverfur það nú að mestu þegar farið er af stað). 

Að lokum vil ég nefna að ég er með fleiri minni/öðruvísi markmið sem ég ákvað að setja ekki inn í þetta enda vinnast þau sennilega ef ég fylgi hinu stíft eftir. En ég get nefnt að hjóla allavega 10.000 km á götuhjólinu (hjólaferðir og samgönguhjólreiðar ekki inní) og svo ætla ég að vera með í Festive 500 í desember, en það er að hjóla 500 km frá 24. desember til 1. jan.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap