Sparnaður

Ein fín af mér og Dagbjörtu Lóu á Aðfangadagsvköld.

Fyrst mál á dagskrá: Við Harpa erum að spá í að láta verða af því að fara út í sólina að hjóla í mars. Með því að fara í gegnum ferðaskrifstofu í Reykjavík getum við fengið ágætis verð á flugi með Nice Air beint héðan frá Akureyri til Tenerife. Í pakkanum væri sæmilegasta íbúðarhótel með sundlaug og pálmatrjám. Ég bið ekki um meira. Við getum reyndar bara verið í 7 daga en það er sannarlega betra en ekkert. Ef ekkert klikkar náum við að hjóla allavega 5 daga, kannski meira.

Næsta mál: Eftir gamlárskvöld fór ég að fá einhvern pirring í lungun og þetta hefur verið að versna í dag. Ég hósta frekar mikið og er búinn að vera aðeins slappur seinnipartinn. Ég átta mig ekki á hvert þetta stefnir en er alveg ógeðslega svekktur. Nóg var komið af pestardrullu.

Af æfingum: Eftir vinnu í dag tók ég 30 mínútna styrktaræfingu fyrir efri partinn hérna heima og tók svo auðvelt hjól í klukkutíma. Á morgun ætlaði ég að taka FTP test en það meikar ekki sens ef lungun eru ekki í lagi. Það er spurning hvort ég breyti ekki bara planinu hjá mér og taki hvíldardag á morgun og fresti þessu testi eitthvað inn í vikuna eða þar til ég hef jafnað mig að fullu.

Af framhaldinu: Ég er búinn að gera nýtt ATP (Annual Training Plan) inni á Training Peaks og velja A, B og C keppnir. Eftir því reiknar forritið út fyrir mann æfingaálag, hvíldarvikur og "minnkun" (tapering). Í þetta sinn ætla ég að hafa Orminn, sem er síðasta mót sumarsins, sem A race hjá mér og toppa þá. Ég ætla að vera með í Íslands- og bikarmótunum en bara fara til að ná í reynslu og gera mitt besta. Hafa gaman. Ég á meiri séns í Orminum og finnst hann skemmtilegri hvort sem er. Nýja planið tekur gildi 23. janúar en fram að því vinn ég nokkurveginn eftir gamla planinu og tek 8 tíma í þessari viku (ef heilsa leyfir), 11 tíma í næstu og svo kemur hvíldarvika upp á tæpar 6 klst.

Og síðast en ekki síst: Ég gleymdi næstum að tala um sparnaðinn! Til að safna upp fyrir útlandaferð höfum við Harpa ákveðið að éta allt úr kistunum hjá okkur og reyna að spara eins og við mögulega getum. Mér finnst þetta bara spennandi verkefni og er með fullt af hugmyndum um hvernig maður getur gert þetta en samt passað upp á að maður fái alla þá næringu sem maður þarf fyrir æfingar. 

Ég ætla að skrifa niður smá hugleiðingar um þetta hér inn fljótlega þegar ég kominn betur af stað. 

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap