Ramp test
Garmin Edge 830. |
Ég var búinn að ætla að að skipta út iWatch-inu mínu fyrir Garmin núna strax eftir jólin, en þegar við ákváðum að fara til Tenerife þá fannst mér gáfulegra að endurnýja hjólatölvuna. Gamla tölvan sem ég er með var með svo lélegt batterý að hún hefði aldrei endst út daginn. Og svo var enginn valmöguleiki með kort heldur. Eftir mikil heilabrot skellti ég mér á Garmin 830 sem þykir ennþá mjög frambærileg þótt hún sé orðin 3 ára gömul. Hún er t.d. fljótari að vinna heldur en 1030 sem er þar að auki stærri. Mér finnst fínt að hafa þetta ekki of fyrirferðarmikið.
Ég tók FTP test áðan og verð að viðurkenna að ég varð fyrir vonbrigðum með niðurstöðuna. Niðurstaðan er 235W sem gerir tæplega 3,6W/kg. Ég fór að fletta upp á Training Peaks og sé að ég tók síðast test 6. apríl, en þá var ég reyndar búinn að hjóla býsna mikið í 5 mánuði. Í það skiptið hélt ég út aðeins lengur og minnir að niðurstaðan hafi verið 240W. Þannig að ég ætti kannski ekkert að vera að svekkja mig á þessu enda langt eftir af base season hjá mér og ég ekki verið að hjóla neitt að ráði. En það er gott að fá þetta á hreint svo maður sé að setja æfingar upp rétt.
Ég og Þórður drösluðum byssuskápnum út úr herberginu mínu áðan og fram í stofu. Um helgina ætla ég að fara og kaupa mér viftu og hillu til að festa á vegginn fyrir fartölvuna. Síðan þarf ég að leggja snyrtilega að þessu rafmagn og færa upphífingarstöngina á annan stað. Nokkuð mikil vinna en verður mjög gaman þegar það er búið.
Ummæli