Lagstur í bælið
Tómatdjús með eggi. |
Það eru misvísandi upplýsingar sem maður finnur varðandi hvort eða hvað maður þarf að borða eftir æfingar. Það er líka svo margt sem spilar inn í; Hvað er langt síðan þú borðaðir síðast? Hversu löng var æfingin? Hversu erfið var æfingin? Hvað er langt í mat? Hvað borðaðirðu á meðan á æfingu stóð?
Aðaltilgangurinn hlýtur að vera að bæta upp vökva- og salttap, fylla á glykogen-birgðirnar (kolvetni) og yfirleitt er talið að það sé ekki vitlaust að ná inn smá próteini. Rannsóknir benda reyndar til þess að próteininntakan eftir æfingar sé mun mikilvægari fyrir konur, sem hafa mun styttri glugga til að fylla á próteinbirgðirnar heldur en karlar. Konum er ráðlagt að fá sér prótein ekki seinna en 30-45 mínútum eftir æfingu- sérstaklega ef þær vilja léttast.
Um daginn hlustaði ég á podcastþátt undir yfirskriftinni Maximizing the Physiology and Performance of the Female Athlete með Stacy Sims. Ég ætlaði nú ekki að nenna að hlusta á þennan þátt en sogaðist inn í hann og áttaði mig á því hvað er rosalegur munur á körlum og konum þegar kemur að æfingum og næringu. Hingað til hafa flestar rannsóknir verið gerðar á körlum og þær svo yfirfærðar á konur- sem er alger fyrra ("Women are not small men"). Ég er nokkuð viss um að stærstur hluti af þjálfurum þarna úti sé ekki meðvitaður um þetta og hvet alla sem lifa og hrærast í þessum heimi að hlusta á þetta.
Ég sjálfur hef reynt að spila þetta svolítið eftir hendinni og lagt aðaláherslu á að éta bara eitthvað matarkyns. Á markaðnum eru allskyns formúlur og dót sem fólk er að kaupa dýrum dómum en á bakvið það eru yfirleitt engar klíniskar rannsóknir. Tómatdjús, egg, haframjöl, bláber og banani er oft eitthvað sem ég gríp mér. Svo eru reyndar rannsóknir sem sýna að kókómjólk sé mjög góð fyrir endurheimt.
Ég var mjög druslulegur þegar ég kom heim úr vinnunni í gær en ákvað samt að henda mér í æfingu. Fljótlega eftir æfinguna fór ég að slappast og var svo kominn með hita í gærkvöldi og leið alls ekki vel. Ég svaf þokkalega í nótt en ákvað að fara ekki í vinnu. Ég er orðinn stíflaður aftur og með mjög sáran hósta. Harpa ætlar að koma með covid- test fyrir mig seinna í dag.
Æfingavikan er því komin í uppnám og það er það versta við þetta allt saman. En maður verður bara að reyna að næra sig vel og hvíla sig.
Ummæli