Hratt af stað

Frá Svíþjóð í sumar.

Nú er ég að reyna að keyra þessa æfingaviku í gang en jafnframt reyna að passa mig að fara ekki of geyst af stað eftir veikindin. Það var svo ekki til að bæta ástandið að ég var alveg frá í bakinu í morgun. En ég skellti mér samt í ræktina og hjólaði svo aðeins á eftir þegar ég var búinn í vinnunni. Ég náði að mýkja bakið með teygjum og rúlli og virðist bara hafa haft gott af því að hreyfa mig. Allavega er bakið skárra.

En ég var samt alveg gjörsamlega búinn á því eftir þetta og taldi tvísýnt hvort ég næði að vaka til klukkan átta í kvöld. Ég svaf stutt í nótt og er greinilega ekki alveg búinn að jafna mig eftir pestina. Á morgun er 1,5 klst hjólaæfing og svo verður þetta bara skrautlegra eftir því sem líður á vikuna. Það er reyndar hvíld á miðvikudaginn og eftir hana næ ég vonandi að klára dæmið.

Ég ákvað að henda inn einni sumarmynd hérna í tilefni þess að ég er búinn að staðfesta ferð til Tenerife í mars!!! Ég er strax að drepast úr tilhlökkun og farinn að skoða leiðir og plana hvað ég tek með mér.

Ég er næstum því búinn að klára markmiðin mín en er ennþá aðeins að lufsast með það matartengda og ætla því aðeins að bíða með að setja þau inn.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap