Gran Fondo í dag og ljósin á
Daníel eðaldrengur og stjúpsonur að bjarga mér í rafmagnsmálum. |
Ég vaknaði rétt fyrir klukkan níu í morgun og skottaðist heim til mín til að taka æfingu. Það var langur dagur í dag, eða 2:35 klst á 165 W sem er neðarlega í Z2 eða ofarlega í Z1 (eftir því hvort ég horfi á 80/20 model eða Andy Coggan). Markmiðið með þessum æfingum er i) að auka virkni og rúmmál hvatberanna í hægu vöðvafrumunum og gera þær skilvirkari í að nota laktat (niðurbrotsefni glúkósa) sem orkugjafa og ii) auka getu hvatberanna í að nota fitu sem brennsluefni. Það fyrrnefnda er sérstaklega mikilvægt því að þegar maður þarf að taka mikið á því (hröðu vöðvaþærðirnir) þá myndast mikið laktat sem líkaminn þarf að losa sig við. Ef hægu vöðvaþræðirnir eru skilvirkir í að nota það sem eldsneyti, þá auðveldar þetta manni að jafna sig þegar maður er búinn að taka mikið á því, t.d. þegar maður fer upp brekku í keppni. Hægar endurance æfingar (Z1 og Z2) eru grunnurinn og bera uppi allt annað sem maður gerir.
Æfingin í dag. |
Þegar ég var að klára æfinguna hringdi Daníel í mig og hann og Olla kíktu í kaffi. Daníel dró rafmagn í lögnina sem ég og Þórður slátruðum í vikunni og því er allt að verða klárt inni í herbergi. Nú á ég bara eftir að sparsla í götin í loftinu þar sem upphífingastöngin var og koma hjólinu fyrir. Stefni að því að gera það á morgun.
Ummæli