Furðuleg veikindi

Ég ætti að fara að kalla þetta blogg vael.is þar sem ég tala orðið ekki um annað en veikindi. En ég hef heldur aldrei lent í öðru eins rugli og ég er að glíma við síðustu vikur. Í fyrrakvöld, akkúrat þegar ég hélt að ég væri að ná mér af þessum pestum, fór ég að fá í magann og verða óglatt. Þetta kostaði einhverjar klósettferðir um nóttina og frekar lítinn svefn. Ég lá svo rænulítill í bælinu í allan gærdag með beinverki og dúndrandi hausverk. Ég svaf svo eiginlega bara út í eitt í allan gærdag. Í gærkvöldi var aðeins farið að rjátla af mér en ég var af biturri reynslu hóflega bjartsýnn á að vera orðinn alveg hress í dag.

Í morgun vaknaði ég hinsvegar alveg stálsleginn og hefur vart liðið betur. Maginn er fínn, ég er ekkert stíflaður og hvíldarpúlsinn orðinn eðlilegur. Ég stefni því að því að taka æfingu á eftir og bara rétt vona að ég sé búinn að ná mér í allt sem í boði er í bili og að ónæmiskerfið sé tilbúið að verjast öllum ómaklegum árásum. 

Annars þarf ég að skreppa á fund til Reykjavíkur í fyrramálið. Þetta verður bara skottúr fram og til baka og því ekki tími til að hitta neinn.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap