Djúsí ökkli
Það sér aðeins á þessu. |
Ég veit ekki alveg hvað ég á að segja um þessi ökklameiðsli mín? Ég er býsna kvalinn þegar ég stíg í fótinn á morgnana en svo líður þetta aðeins úr manni yfir daginn þegar maður liðkast og hitnar. Ég er snertiaumur á utanverðri ristinni en finn ekkert til innan á ökklanum- þó ég sé líka blár og marinn þar. Út frá þessu met ég það sem svo að ég hafi ekki slitið neitt og sé óbrotinn. En ég var reyndar aldrei mjög kvalinn þegar ég braut viðbeinið heldur.
Ég ætla að heyra í Helgu systir á eftir og láta hana hjálpa mér að meta hvað sé ráðlegt varðandi hreyfingu næstu daga. Mig langar rosalega að setjast aðeins á hjólið á morgun en geri það að sjálfsögðu ekki ef hún ræður mér frá því. Það gæti reyndar líka verið helvíti vont að koma sér í hjólaskóinn.
Ég skellti mér í ræktina í gær og tók æfingar fyrir allan efripartinn. Planið næstu daga er svipað; æfingar fyrir ofan mitti og rólegt hjól um leið og ökklinn leyfir.
Ummæli