Aðstaðan
Hjólaaðstaðan þessa dagana- nægir alveg en ekki fullkomin. |
Ég er með í vinnslu að koma innihjólaaðstöðunni í betri farveg hjá mér. Síðasta vetur var ég með þetta inni í svefnherbergi en það var heldur þröngt og líka leiðinlegt fyrir Hörpu að vera með hjólið alveg upp við rúmið sín megin. Eftir síðasta vetur fór þetta dót svo inn í stofu í einhverju millibilsástandi og þar er það enn. Þetta sleppur s.s. alveg en það er draumurinn hjá mér að setja upp almennilega aðstöðu þar sem maður er með allt við hendina og er fljótur að koma sér í gang þegar maður á æfingu. Og svo þarf auðvitað að vera auðvelt að þrífa í kringum þetta; sviti, sull úr brúsum og mylsna úr hafrakökum fylgja þessu.
Núna er ég að fara að koma byssuskápnum úr herberginu hjá mér og þá mun myndast meira pláss og ég ætla að reyna að koma mér fyrir þar aftur en skipuleggja það betur. Núna ætti ég að geta fært aðeins rúmið til hliðar og smokrað hjólinu út í horn við gluggann. Stofan er náttúrulega rúmbetri en þá þyrfti ég að fórna málningaraðstöðunni og ég tími því ekki. Maður stefnir alltaf að því að byrja að mála aftur og ég er hræddur um að það yrði aldrei neitt úr því ef ég tæki niður stúdíóið.
Wahoo Kickr Core trainer |
Ef það eru einhverjir hérna sem hafa áhuga á því að vita hvað maður þarf til að hjóla svona inni, þá er hér smá listi:
- Hjól
- Trainer (smart-trainer er eina vitið)
- Vifta
- Spjaldtölva/Sími/Fartölva
- Áskrift af Zwift
- Dýna undir (ekki möst)
Það er alveg hægt að fara aðrar leiðir í þessu en þetta er klárlega það sem meikar mestan sens og eitthvað í líkingu við það sem flestir gera. Trainerinn tengist þráðlaust með Blue-Tooth with snjalltæki/fartölu og þar opnar maður Zwift forritið. Þar getur maður svo valið sér brautir, hjólað með allskonar fólki út um víða veröld eða valið æfingaprógrömm sem Zwift bíður upp á. Ég reyndar bý til allar mínar æfingar sjálfur í Training Peaks og opna þær svo í gegnum Zwift.
En nú er ég s.s. að skoða hvernig ég kem þessu öllu fyrir á sem bestan hátt inn í herbergið mitt og er að skoða alvarlega hvort ég fái mér stærri skjá til að hengja á vegginn. Undir honum yrði ég sennilega með litla hillu fyrir fartölvuna og svo þarf ég leysa það hvar ég kæmi fyrir viftu ef ég vil spara pláss. Og svo þarf að vera gott að leggja frá sér brúsa og eitthvað til að narta í. En þetta skýrist allt þegar ég losna við byssuskápinn og ég mun henda inn einhverjum myndum.
Í dag er fyrri hvíldardagurinn minn af tveimur og ég er búinn að nota hann í að dunda hérna heima og leyfði svo þremur vinkonum Dagbjartar að koma í heimsókn. Við fórum út að leika og skruppum svo í búð að kaupa með kaffinu. Núna er ég að malla kjúklingavængi í ofninum og sjóða grjón.
Ég steig á vikt í morgun og ég er orðinn 7 kg þyngri en ég var léttastur í sumar. Ástæðan er sú að ég er búinn að vera að lyfta mikið og svo borða ég eins og kóngur. Ég finn að ég er aðeins þyngri á mér í hlaupunum en ég er drullubrattur á hjólinu og finnst ég hafa mikið power. Ef ég verð sprækur á fimmtudaginn mun ég taka FTP test og hlakka til að sjá hvað kemur út úr því. Viktin fer svo væntanlega að síga niður þegar maður fer að bæta í hjólaæfingarnar og fasa út lyftingarnar.
Ummæli