Korter í kvef
Frá fundi í dag. |
Annars er ég búinn að vera hálfslappur eins og síðustu daga. Týpískt ástand þar sem maður er hvorki lasinn né heilbrigður. Kverkaskítur, stíflur, sviði í nefi og maginn ekki nægilega góður. Ég lendi stundum í svona kvefskít sem situr í mér lengi án þess að ég leggist í bælið.
Þetta hefur ekki stoppað mig í að æfa en ég er hikandi við að fara út að hlaupa á morgun, sérstaklega ef svifryksmengunin heldur áfram að vera yfir heisluverndarmörkum. En ég skelli mér örugglega í ræktina ef ég versna ekki.
Ummæli