Fyrsti í rækt
Skellti mér í fyrsta skiptið í TFW síðan í mars. |
Fékk prufutíma í ræktinni í dag til að athuga hvernig öxlin myndi bregðast við áreitinu. Ég ætlaði að hafa þetta voðalega rólegt en endaði með því að velja mér óþarflega þung handlóð fyrir æfingar dagsins og það er viðbúið að ég eigi eftir að eiga erfitt með gang á morgun eftir framtstig og hnébeygjur. Hnéin á mér voru ekkert allt of hress með þetta á meðan á þessu stóð en góðu fréttirnar voru að öxlin var bara fín. Húrra fyrir því.
Fyrir tímann hljóp ég 2,4 km á 6 min/km og var s.s. bara ágætur þó ég hafi ekki verið jafn sprækur og í gær. Ég hugsa að það væri sterkur leikur hjá mér að hvíla á morgun en svo er ég að hugsa um að skella mér á kort og reyna að vera duglegur í ræktinni. Ég fíla æfingarnar í TFW mjög vel og þetta er fín blanda af hreinum styrk með þungum lyftingum, hraða og léttari þyngdum líka. Þetta eru mjög góðar alhliða æfingar og skynsamleg nálgun.
Surly Moloko (stærra stýrið) vs. Salsa Rustler (flat bar). www.wahatsbars.com |
Ég sendi vinum mínum hjá Surly Bikes fyrirspurn varðandi nýtt stýri á Pugginn (fatbike-ið). Það kom með mjög voldugu ferðastýri með "nautshornum" sem eru gerð til þess að maður geti hallað sér meira fram til að minnka vindmótstöðu en það nýtist fyrst og fremst á sléttum vegum og lengri ferðum. Ég er yfirleitt að fara stuttar leiðir hérna innanbæjar, oft í miklum snjó. Ég væri því sennilega betur settur með hefðbundið fjallahjólastýri, auk þess sem ég held að hjólið myndi lúkka miklu betur.
Þeir sendu mér hlekk á síðu sem heitir WhatsBars sem er alger snilld ef maður þarf að bera saman ólík stýri fyrir ferðahjól. Þeir bentu mér líka á annan möguleika sem er Velo Orange Crazy Bars. Ég þarf bara aðeins að meta þetta miðað við þá notkun sem ég er með á hjólinu. Hallast frekar að ég taki bara sama stýri og þeir nota á Ice Cream Truck sem er annað fatbike sem þeir eru með í sölu.
Ég er líka búinn að vera að skoða Son led ljós sem eru tengd beint við dínamó. Þau virka á bilinu 6-75V sem er rosalega vítt svið. Þau eru því miður uppseld en ég er að spá í að kaupa mér bæði fram og afturljós og kaupa svo 12V endurhlaðanlegt batterí til að vera með í töskunni á stellinu. Draumurinn er svo að útbúa rofa á stýrið svo maður þurfi ekki alltaf að opna töskuna til að kveikja á ljósunum. Með þessu og nýju stýri þá verð ég klár í veturinn.
Ummæli