Daglegur hamstur

Dagbjört að stauta.

Vikan fór fjörlega af stað og ég búinn að vera á hvolfi. Það fer að verða hálfgerð klisja að væla um það hérna en þannig er það bara. Náðum að klára eitt major verkefni í vinnunni í dag og því verður aðeins meiri ró í manni á kaffistofunni í fyrramálið. Og líka tilhlökkun að hendast í önnur verkefni sem setið hafa á hakanum.

Ég skellti mér út að hlaupa áðan og nú gerðist það sem ég hef beðið eftir. Ég var miklu léttari á mér og fannst þetta í rauninni ekkert mál. Ég fékk reyndar verk í vinstra hnéið eftir 2 km en þjösnaðist bara áfram og þá hvarf hann. Ég hljóp 3,4 km á 5:30 min/km og hefði alveg getað haldið áfram. Stefni að einhverju svipuðu á morgun, svo dagur í hvíld, þá smá sprettir og svo "langur" laugardagur.

Þegar ég kom heim tók ég 30 mínútna æfingu sem mætti alveg kalla yoga. Teygði vel á löppum og liðkaði blessaðar mjaðmirnar. Henti inn smá upphífingum og maga líka. Eftir hlaupin á morgun tek ég efripart. Sendi skilaboð á Egil í TFW og spurði hvort ég gæti komið í prufutíma til að kanna hvort öxlin þoli það. Hann hefur ekki svarað ennþá.

Mataræðið hefur verið frekar slappt miðað við standard síðustu mánaða. Borða heldur mikið af kolvetnum miðað við að ég sé ekki að hjóla. Ég ætla að taka mig smá taki og reyna að auka prótein, sértaklega þegar ég fer að henda inn lyftingunum. Ég þokast hægt upp í þyngd og hugsa að ég reyni að stramma mig af 2-3 kg fyrir ofan þá þyngds sem ég vil vera í þegar ég keppi.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap