Ánægjulegt hlaup!

Hlaup dagsins.

Ég var búinn að ákveða að næsta hlaup hjá mér yrði einskonar álagspróf fyrir hlaupið sem ég ætla að taka þátt í eftir tæpan hálfan mánuð. Ég skellti mér út eftir vinnu þrátt fyrir að vera pínu stressaður með hálkubletti og frosna polla hér og þar. Það slapp alveg til.

Ég byrjaði á að taka rúmlega kílómeter í upphitun en hélt svo ca. 4:20 min/km í rétt tæpa 2,5 km, en skokkaði mig svo niður og fór 5 í heildina á 25 mínútum. 4:20 pace skilaði púls upp á ca. 153 sem er undir threshold hjá mér (á hjólinu). Mér leið vel allan tímann og hefði alveg getað haldið áfram í 2,5 í viðbót á þessum hraða. Eftir 2 vikur treysti ég mér eflaust til að ýta aðeins meira á þetta og er þá sennilega einhverstaðar í kringum 21 mínútu með 5 km sem er framar björtustu vonum.

Ég er ótrúlega ánægður með framvinduna í þessu og hnéið á mér var alveg verkjalaust þar til ég hljóp mig niður, en þá kom smá seiðingur, ekkert alvarlegt. Nú er bara að missa sig ekki í gleðinni og halda áfram að vera skynsamur. Á morgun er réttstaða og hnébeygja í ræktinni. Hvíld á laugardag og svo langur sunnudagur í skítaveðrinu.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap