Meiri blástur
Þetta hjól....... |
[15:30]
Ákvað að henda mér aðeins niður hérna á sófanum og jarðtengja áður en ég kveiki aftur á vinnutölvunni. Var að koma heim eftir frekar súran dag og er hreinlega að drepast úr stressi. Mér finnst fátt verra en að líða svona. Ég var að spá í að reyna að gleyma mér aðeins og taka stuttan hjólatúr en það er allt of hvasst og mér fannst ég ekki getað hlaupið frá heimilinu eða vinnunni. Nú ætla ég að vinna aðeins.....
[17:30]
Nú er ég búinn að taka snúning á vinnunni og líður aðeins betur. Tímabundin tilfinning að maður sé með control á hlutunum. Hverfur sennilega á morgun, svo ég detti nú ekki í bjartsýni.
Ég ákvað að halda mér við efnið í heimaæfingum og endurhæfingu eftir að ég lokaði vinnutölvunni. Það var mikill vindur þegar ég var á hjólinu í gær og það kostaði átök sem skiluðu sér í smá eymslum. Ágætis áminning um að björninn er ekki unninn. Núna tók ég slatta af upphífingum með öfugu þröngu gripi (það er alveg sársaukalaust) en svo bætti ég við 3 settum af upphífingum með víðasta gripi. Það tók aðeins í öxlina en ég held að það sé ekkert til að hafa áhyggjur af. Nú styttist í að það sé komið ár síðan ég setti upp stöngina og ég hlakka til að gera upp árið og fara yfir hvernig þessi tilraun tókst.
Eftir að ég var búinn í upphífingum þá tók ég 3x10 armbeygjur og 3x10 hangandi kviðæfingar. Armbeygjunum fylgir ennþá smá sársauki en hann hverfur um leið og ég stend upp. Ég bara held áfram að moðast í þessu. Annars er maður sáttur við hvað maður er fljótur að ná upp fyrri styrk og maður sér líka strax mun á líkamanum.
Ég var að hlusta á podcastið hjá Colby Pearce í gær þar sem hann var að tala um hjólreiðamenn sem eru með tannstönglahendur og geta ekki einu sinni lyft 7 kg racer upp fyrir haus. Hjólara með enga maga- eða bakvöðva. Fólk sem bara hjólar, gengur aldrei, hleypur aldrei eða fer í ræktina. Það er hægt að ná ágætis árangri tímabundið en svo hrynur allt að lokum. Þetta snýst um að halda alhliða styrk og liðleika til að standa undir þessu. Og lokatakmarkið hlýtur alltaf að vera vellíðan og almenn heilsa.
Talandi um vellíðan og góða heilsu. Við Harpa erum búin að fá tíma í bikefit í Reykjavík um þarnæstu helgi. Það er líka gríðarlega mikilvægt til að forðast meiðsli og líða vel á hjólinu. Við förum í gegnum allskyns mælingar og teknar af okkur myndir sem eru greindar með tölvuforritum. Allt er tekið í gegn, hæð á sæti löguð, klítar skoðaðir, hæð á stýri, skór og allur pakkinn. Þetta verður vonandi til þess að Harpa nái að halda bakinu á sér heilbrigðu til lengri tíma og ég hætti að vera dofinn í tittlingnum þegar ég hjóla🤷♂️
En nú tókst mér að snúa þessum pistli mest upp í eitthvað raus um hjól. Í næsta pistli skal ég lofa að tala bara um hjól.
Ummæli