Dagur #71 - Röntgen og læknisheimsókn
Ræs á Stelpuhring Akureyrardætra. |
Ég fór í röntgenmyndatöku í hádeginu í gær og á svo að hitta Ómar bæklunarlækni í hádeginu í dag. Ég bíð að sjálfsögðu spenntur eftir niðurstöðunni en hef enga tilfinningu fyrir hvað muni gerast. Miðað við líðan núna þá finnst mér ekki ólíklegt að ég fari allavega í sjúkraþjálfun. Ég allavega fæ verki í þetta þegar ég er að beita mér eða ber fyrir mig hendina á ákveðinn hátt.
Ég held því ennþá fram að ég sé verstur þá daga sem ég er að vinna. Þegar maður situr við skrifborð og pikkar á tölvu, þá leka axlirnar fram og maður heldur ekki spennu á bakvöðvunum. Ég gæti trúað að þetta skapi einhvern núning sem pirrar mig. Ég var allavega ágætur um helgina þó ég hafi hjólað á föstudaginn og sunnudaginn.
En eftir tímann á morgun kemur í ljós hvort ég fái að skrá mig í Orminn um helgina. Ég er orðinn hrikalega spenntur enda er formið hjá mér orðið alveg þokkalegt aftur. Ég tók brekkuspretti á sunnudagskvöldið og í fyrradag hjólaði ég inn að malbiksenda. Þetta voru rúmir 68 km og ég hélt tæplega 31 km/klst. Það var mikill mótvindur og maður var orðinn aðeins dasaður þegar maður kom inn að enda, en svo fékk maður allt í bakið og þaut heim á fínum hraða. Púlsinn var reyndar frekar hár miðað við vött, svo líklega hef ég verið dasaður eftir brekkusprettina.
Sigrún, Harpa og Sóley eftir Stelpuhringinn. |
Í gær var hvíld hjá mér en ég fór og vann sem sjálfboðaliði í brautargæslu á stelpuhring Akureyrardætra í gærkvöldi. Harpa tók þátt í þessu og að sjálfsögðu gerði hún sér lítið fyrir og vann þetta. Eftir mót var súpa og brauð, drykkir og kaffi og þetta var virkilega skemmtilegt.
Í dag ætla ég að taka létt endurance, og á morgun tek ég spretti og svo verður rólegur hringur á föstudaginn í Hallormsstað ef guð og lukkan leyfir.
Ummæli