Dagur #63

Reyndi að ná pedölunum af gamla hjólinu í gær til að selja þá. Það sjást smá áverkar eftir krassið mitt á batteríis-lokinu en það er hægt að skipta því út.

Ég er snemma á fótum í dag og á leið út úr dyrunum eftir smá stund til að fara að vinna. Svaf ágætlega í nótt en verð að viðurkenna að ég væri alveg til í að vera að fara að gera eitthvað annað. Hugga mig samt við að það að ef ég fæ frí á föstudaginn, þá eru þetta bara 3 dagar og tíminn verður fljótur að líða. Ég gleymdi kjúkling á borðinu í nótt sem ég ætlaði að borða svo ég verð að fara nestislaus. Spurning hvort ég fari ekki og kaupi mér salat þó ég sé að reyna að spara pening. Eftir sukk helgarinnar er sennilega best að reyna að koma í sig almennilegri næringu.

Í gær var ég eitthvað að dunda hérna heima við að sortera og ganga frá. Það endaði nú samt þannig að ég gerði ekki mikið annað en að þrífa keðjuna og skiptinguna á gamla hjólinu. Ég þarf að fara með það til Halla í 66 Hjól til að láta hann laga framskiptinn sem hefur ekki virkað eftir að hann fór yfir það um daginn. Ætlaði að taka af watta-pedalana til að selja þá en annar þeirra var svo fastur að ég varð frá að hverfa og var farinn að finna til í öxlinni við átökin.

Veðrið hérna er drullu leiðinlegt og það spáir rigningu og kulda seinnipartinn. Stefnan var að fara upp í Hlíðarfjall og taka eina erfiða yfir/undir æfingu en nú er ég farinn að spá í hvort ég setji gamla hjólið ekki bara á trainer hérna í stofunni og hjóli inni í hlýjunni. Það er ekkert sérstaklega gaman að fara út í þetta veður, sérstaklega þegar maður á svo eftir að þrífa hjólið þegar maður kemur heim.

Þó ég hafi ekki hjólað neitt í gær var pínu þreyta í mér þegar ég stóð á fætur í morgun en það rjátlar vonandi fljótt af mér. Öxlin er svipuð, smá pirringur en verkjalaus.

Power balance hægri/vinstri úr Garmin

Kannski enda þetta að gamni á smá nýrri tölfræði sem ég fæ út úr nýju watta-sveifunum á Giant hjólinu. Hingað til hef ég bara verið með aflmæli fyrir vinstri fótinn og var oft búinn að velta fyrir mér hvort önnur löppin væri dómínerandi yfir hinni. Niðurstöðurnar úr fjórum fyrstu túrunum á nýja hjólinu sína mér að ég er að nota báða fæturnar nákvæmlega jafn mikið. Ágætt að fá það staðfest þó það skipti s.s. ekki öllu máli þó fólk sé með eitthvað ójafnvægi á milli. 




Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap