Dagur #62
Það hafa verið málarar að störfum á svölunum hjá mér og stofan því litið út eins og bílskúr. |
Mér finnst ótrúlegt að hugsa til þess að það séu orðnir 2 mánuðir síðan ég lenti í slysinu og sumarið sé að verða búið. Til að undirstrika þetta þá gekk kröftug lægð yfir landið um og veðrið hefur verið leiðinlegt um helgina. Sannkallað haustveður.
Annars er alltaf svipaður gangur í þessu. Á veturnar bíður maður með óþreygju eftir sumrinu, staðráðinn í að njóta þess í botn, en vaknar svo upp á haustin þegar það er þotið hjá. Svo skellur á vetur og maður fer að hlakka til næsta sumars og gera ný plön.
En þrátt fyrir að flest mín plön hafi farið í vaskinn þetta sumarið, þá kvarta ég ekki. Ég átti frábæra ferð með börnunum til útlanda og við Harpa áttum frábæra hjólahelgi í Mývatnssveit fyrir viku síðan. Í fyrradag skelltum við okkur til Dalvíkur og hjóluðum Svarfaðadalinn tvisvar. Síðan fórum við í sund og borðuðum nesti. Í gær hjóluðum við svo rúmlega 50 km hérna í grennd við Akureyri og það var bara skárra en maður reiknaði með þegar maður leit út um morguninn, þrátt fyrir nokkuð kröftugan blástur á köflum.
Hjá brúnni yfir Svarfaðadalsá. |
Um næstu helgi förum við suður þar sem Harpa er að fara að keppa á Þingvöllum. Ég stefni að því að taka frí á föstudaginn þannig að við getum verið komin snemma og ætli við hjólum ekki einn eða 2 hringi til að skoða brautina. Ætli ég hjóli nokkuð á laugardeginum heldur verði bara Hörpu til aðstoðar en svo stefnum við að því að hjóla í Reykjavík áður en við förum heim á sunnudeginum.
Tour de Ormurinn verður svo 13. ágúst og ég stefni að því að skrá mig þar til leiks. Ég á að hitta Ómar bæklunarlækni þann 10. ágúst. Ég hugsa að ég segi honum að ég sé að fara að keppa og vona að hann setji mig ekki í straff. Ég hlakka orðið mjög mikið til og ef veðurspáin verður góð hugsa ég að við reynum að fá tjaldvagninn lánaðann hjá mömmu og Agli og gerum smá útilegu úr þessu.
Gangi þetta allt eftir er ég viss um að maður á eftir að geta horft í baksýnisspegilinn og hugsað sem svo að þetta sumar hafi ekki verið sem verst þrátt fyrir viðbeinsbrot hjá mér og brjósklos hjá Hörpu. Það var reyndar orðin stefnan hjá mér að reyna að komast út til Kanarí í nóvember en með kaupum nýja hjólinu þá verð ég að setja það á ís.
Vikan á Strava. |
Æfingar síðustu viku gengu vel og mér og nýja hjólinu gæti ekki komið betur saman. Ég ætla að vera grimmur í æfingum næstu viku og skynsamur vikuna fyrir Orminn þannig ég verði vel hvíldur. Ég hef á tilfinningunni að ég muni standa mig vel og finnst ég í fínu formi.
Nú þarf að endurskipuleggja hjólaskúrinn. |
Annars sit ég bara hérna uppi í sófa og er að sulla í mig síðbúnu morgunkaffi. Er að reyna að hafa mig af stað í að laga aðeins til hérna heima. Ég þarf að koma grillinu og útihúsgögnunum út á svalir eftir að þær voru málaðar og svo þarf ég að skipuleggja aðeins hvernig ég kem öllu fyrir hérna eftir að nýji heimilismeðlimurinn mætti á svæðið. Nýja hjólið fær væntanlega pláss á veggnum og ég þarf að hafa hleðslutæki við hendina fyrir wattamælinn, hjólatölvuna og batteríin fyrir skiptingarnar. Síðan þarf ég að sortera öll verkfæri og annað sem þessu tengist, kaupa nýja verkfæratösku og hafa þetta allt á sama stað.
Síðan er stefnan hjá mér að losna við byssuskápinn úr herberginu og koma gamla hjólinu þar fyrir á trainer. Ég tími ekki að selja það og það verður gott að hafa það alltaf tilbúið þegar veðrið er vont. Ég stefni að því að kaupa góða viftu og festa skjá á vegginn. Gera geggjaða aðstöðu.
Ummæli