Crit og tiltekt
Gangandi gyðingur og risi. |
Ég hvíldi hjólið í gær en ákvað þess í stað að taka í gegn hér heima. Börnin koma seinnipartinn og best að reyna að hafa svolítið fínt. En herbergið hennar Dagbjartar Lóu var svo stórt verkefni að ég komst ekki yfir mikið meira. Að sjálfsögðu notaði ég tækifærið og grisjaði vel og vona að hún taki ekki eftir neinu. Síðan þvoði ég þvott, fór með dót í geymslu ofl. Náði ekki að þrífa neitt, bara laga til.
SRAM Rival rafmagnsskiptingar og Giant Halo vattasveifar. |
Þegar ég var alveg að verða búinn á því rak ég svo augun í hvað hjólið var skítugt eftir Orminn og dröslaði því út og þreif það. Ég er staðráðinn í að vera duglegur að halda því við og það er gaman að geta þrifið það þannig að skiptingarnar verða alveg glansandi. Þannig líka endist þetta betur og virkar þegar maður þarf á því að halda. Til að þrífa smurninguna og skítinn af nota ég Undra, visvænt hreinsiefni. Þannig get ég óhræddur verið með þetta úti á grasi og skolað þessu niður. Þegar ég bjó í Dalsgerðinu var ég með einhvern venjulegan olíuleysi og ég drap allt grasið í kringum hjólið.
Nú er ég að fara að henda mér í vinnuna og svo koma börnin milli klukkan þrjú og fjögur. Ég ætla svo að skreppa upp á bílasvæði klukkan 17:30 að hjóla einhvern criterium hring með HFA fólki. Síðan verður sett upp stutt æfinga-keppni. Eftir það förum við til Halldóru systir í mat og mamma ætlar að kíkja við.
Ég er búinn að vera að gera upphífingar og armbeygjur og það er alveg ótrúlegt hvað jákvæð áhrif það hefur. Síðan ég byrjaði að nota hendina eitthvað af ráði hafa verkir minnkað um örugglega 50% og mér finnst hlutirnir gerast hratt núna. Kannski fæ ég að mæta í prufutíma í TFW í næstu viku til að tékka á þessu.
Ummæli