Blíða
Hitaspá fyrir þriðjudag. |
Ég ætla að skella mér út að hjóla á morgun, hinn, hinn og hinn. Ég þarf svo að skella mér til Reykjavíkur í vinnuferð á mánudaginn og þá verður frí hjá mér. Og nú er mér farið að dauðlanga til að taka mér frí á þriðjudaginn og gera einhverja góða reysu á meðan aðrir eru að vinna. Ég á ennþá 25 daga eftir af sumarfríi og ef verkefnastaðan væri ekki svona þung í vinnnunni, þá væri það "no brainer".
Ég væri alveg til í að hjóla upp í Mývatnssveit, fara í kaffi til mömmu, fá mér vel að éta og hjóla svo til baka. Ég ætla að sofa á þessu.
Annars var vinnudagurinn í dag betri en í gær og maður virðist halda þessu á floti. Þegar ég kom heim úr vinnunni henti ég mér á hjólið í stofunni og hjólaði rúma 50 km. Ég var þungur til að byrja með leyst ekkert á blikuna en svo hresstist ég og átti fína æfingu.
Ummæli