Dagur #47
Við Þolli í skóginum. |
Jæja þá er þetta ferðalag að fylla 2 vikurnar og við börnin höldum af stað heim til Akureyrar eftir rúman klukkutíma. Pabbi ætlar að skutla okkur yfir og það minnkar aðeins stressið. Lestarkerfið hér í Svíþjóð er búið að vera í hálfgerðu rugli síðustu mánuði og mikil traffík. Það verður því voðalega notalegt að láta bara droppa sér beint út í flugstöðinni, sérstaklega þar sem maður er með börnin.
Litlu hásetarnir mínir. |
Ferðin okkar til Västerås var alveg frábær og fullt af ævintýrum fyrir börnin. Kanóferð við Björnö mun örugglega lifa lengi í minningunni og svo gátum við farið þrisvar að baða í vatninu þrátt fyrir að veðrið væri nú ekkert frábært allan tíman. Við Þolli náðum líka að fá okkar tíma til að ræða lífið og tilveruna.
Við lendum á Akureyri um kaffileitið í dag og Harpa kemur og sækir okkur á völlinn. Það verður í nógu að snúast þegar maður kemur heim en mig dreymir um að henda mér út að hjóla þar sem ég er ekki búinn að taka æfingu í 2 daga. Tæknilega séð ætti ég ekki að hjóla úti fyrr en um helgina þannig að það væri hálf neyðarlegt ef eitthvað myndi klikka. Ég sef á því á leiðinni.
Annars er bara vinna á morgun og því miður er það búið að vera í kollinum á manni síðustu daga. Þetta var of stutt sumarfrí og spurning um hvort maður geri ekki alvöru úr að panta 2 vikur á Gran Canaria í nóvember.
Ummæli