Dagur 34# 🇩🇰
Í siglingu í Nyhavn. |
Datt í hug að henda í eina færslu þar sem maður greip nú með sér tölvuna. Við höfum það að sjálfsögðu mjög gott hérna í Köben og erum búin að bralla ýmisslegt. Það kvartar enginn, nema kannski veskið mitt. Mér líður eins og ég standi í ofsaroki með fangið fullt af seðlum sem bara fjúka í burtu. En við hugsum um það seinna.
Í gær fórum við í Tivoli og í dag í Den blåa planet og siglingu á kanölunum (mæli með). Síðan höfum við bara verið að þvælast í bænum og þá hafa börnin að sjálfsögðu mest gaman að því að þvælast í búðir. Trekk í trekk er ég búinn að segja að það sé ekki í boði að kaupa neitt, en svo gef ég alltaf eftir.
Þegar við vorum í Tivoli í gær voru sírenur vælandi fram og aftur allan tímann. Þegar við komum út var bærinn morandi í lögreglumönnum með vélbyssur og hjálma og búið að loka einhverjum götum. Ég fékk svo skilaboð frá mömmu um að kíkja á netið og þá frétti ég fyrst að þessari hörmulegu skotárás. Ég sagði börnunum ekki neitt og þau veltum því mikið fyrir sér hvað væri málið með allar þessar löggur. Dagbjört var viss um að einhver hefði reynt að smygla sér í tívolítæki sem hann hefði ekki mátt fara í. Ég sagði henni að það væri ekki ólíklegt.
En það var nokkuð skrítin stemmning í borginni í gærkvöldi og einhver drungi yfir öllu. Allur þessi viðbúnaður í bænum fékk mann til að velta fyrir sér hvort það gæti hugsanlega verið eitthvað meira yfirvofandi. Maður var ekki alveg rólegur þarna með börnin. En það var eiginlega bara á leiðinni í metroið aftur sem ég fattaði, að eitt af því besta við Kaupmannahöfn er einmitt að maður sér yfirleitt hvergi löggur. Það hefur ekki verið þörf á því hingað til og þar finnst manni maður alltaf öruggur.
Öxlin er bara svipuð en ég var orðinn smá þreyttur í henni í gærkvöldi eftir að hafa burðast með þungan bakpoka allan daginn. Í morgun skellti ég mér í ræktina og tók þokkalega erfiða 45 mínútna æfingu sem skilaði 60 Tss (fyrir þá sem vita hvað það þýðir). Þetta var eitthvað avanserað þrekhjól sem ég gat tengt iWatch-ið við og svo hlóðst æfingin niður á Strava og Trainingpeaks. Á því var vifta, skjár og allskyns afþreying. Ætla að taka aðra eins æfingu í fyrramálið og svo byrja ég að hlaupa úti eftir það.
Ummæli