Dagur #7

Marið heldur áfram að koma fram og nú er ég orðinn blár niður á upphandlegg, þó það sjáist ekki vel á myndinni.

Ég var svolítið verkjaður í morgun þegar ég vaknaði og það var aðalega í herðablaðinu. Síðan lenti ég í óþarfa hasar í vinnunni í dag og þurfti að vera þar rúmlega tveimur klukkutímum lengur en ég ætlaði mér. Ég var orðinn helvíti lélegur þegar ég fór heim og kominn með allskyns vöðvakippi og verki í herðablaðið. Það tók mig smá tíma að jafna mig eftir að ég kom heim en núna líður mér þokkalega. Ég er búinn að vera að brasa hérna heima og reyndar ekkert notað fatlann. Sárin eru að gróa og ég held að ég hafi verið að setja umbúðir í síðasta skipti á mjöðmina. Það sem pirrar mig mest með mjöðmina er einhver bólgupoki sem er eins og aukakíló af fitu en þetta hjaðnar vonandi fljótlega.

Í dag kíkti ég með Hörpu á lagerinn hjá pedal.is og keypti mér nýja hjólapeysu fyrir þá sem eyðilagðist í slysinu. Ég þarf líka að kaupa mér buxur og eitthvað fleira en fékk valkvíða og ætla bara að salta það aðeins. Sjálfsagt ágætt að bíða eftir að maður verði aðeins skárri og sjá hvað ég fæ mikið út úr tryggingunum.

Dagbjört Lóa og Lukka í góða veðrinu.

Á morgun þarf ég að fara í vinnuna og ganga frá nokkrum málum áður en ég fer í aðgerð og veikindafrí. Þegar það er búið ætla ég bara að klippa mig og raka og taka því svo rólega. Harpa og Halldóra systir ætla að hjálpa mér með börnin og hana Lukku sem er í pössun. Ég hlakka óskaplega til að komast í þessa aðgerð og bind miklar vonir við að batinn verði skjótur eftir það. Ég hef ekki áhyggjur af því að komast ekki á hjólið, heldur miklu frekar áhyggur af því að eiga erfitt með að lyfta og beita öxlinni í framtíðinni. En ég vona bara það besta og legg kannski inn beiðni um sjúkraþjálfun fljótlega.

Ég er búinn að fá tölvupóst frá Wahoo og Kríu í Reykjavík. Ég má láta sækja nýjan trainer þangað og því ætti ég að geta byrjað að hjóla fljótlega eftir aðgerð. Þarf bara að finna einhvern sem er á ferðinni.

Ég náði ekki að labba neitt af viti í dag en hef haldið mataræðinu fínu. Spínat-hrystingur, brauðsneið, banani, kjúklingur og svo salat með túnfiski og eitthvað gúmmelaði. Ég er hef engar áhyggjur af viktinni en ég er samt staðráðinn í að éta ekki á mig 5-6 kg á stuttum tíma. Svo er ég að leggja mikla áherslu á hollustu til að flýta fyrir batanum. Fyrir utan hollan mat þá tek ég C- og D-vítamín, Calcium Magnesíum og lýsi. Það þýðir ekkert að leggjast í aumingjaskap og maður verður að reyna að gera eitthvað.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap