Dagur #5
Marið að verða vel gult. |
Maður mjatlast í gegnum hvern daginn á fætur öðrum og líðanin er skárri en ég hefði þorað að vona þegar ég áttaði mig á því að ég vær brotinn. Þetta er misvont og fer það sjálfsagt eitthvað eftir því hversu langt er síðan ég tók verkjalyf og líka eftir því hvernig ég hef verið að beita mér eða legið. Ef ég er að brasa eitthvað verð ég að passa mig á því að spenna vöðvana í herðablaðinu til að halda á móti svo brotið juggist minna. Það er líka vont að draga andann djúpt og verkirnir eru farnir að breiða aðeins úr sér, t.d í herðablaðið. Kannski tengist það því að maður beitir sér skringilega og er stífur, hvað veit ég.
Ég og Harpa tókum daginn rólega til að byrja með og það var alveg dásamlegt og gráupplagt. Við lágum mest fyrir fram að hádegi en skelltum okkur þá í búðir og svo sóttum við börnin í strætó þegar þau komu úr Skagafirði. Ég grillaði borgara í kvöld og svo er ég að bíða eftir að Lukka (tíkin hennar Guðrúnar) komi hingað í pössun. Ég get alveg viðurkennt að þetta er ekki alveg til að minnka flækjustigið hjá mér þessa dagana en ég var búinn að lofa þessu fyrir löngu og vona bara það besta. Ég er búinn að segja börnunum að það sé þeirra verkefni að hugsa um hana í vikunni.
Ég og Harpa fengum okkur fínan göngutúr í Kjarnaskógi í dag. Ég er búinn að passa mig á því að ganga eitthvað alla daga síðan ég lenti í óhappinu. |
Ég þarf að fara í vinnuna á morgun og það er bara að sjá til hvernig manni gengur að vinna. Tæknilega séð get ég náð 3 dögum en svo er aðgerðin á föstudaginn og ég var búinn að skrá mig í sumarfrí alla vikuna eftir það- sem nú væntanlega breytist í sjúkraleyfi. Þolli kemur á sunnudaginn og þar sem við þurfum að afskrifa hjólaferðalagið þá bara verðum við að hanga og drekka kaffi. Fara í göngutúra og á söfn. Æi þetta er allt svo mikið fokkíng klúður. Jæja.
Annars er ég búinn að senda inn "claim" á trainer-inn minn hjá Wahoo þar sem var komið eitthvað skrítið hljóð í hann. Mér skilst á Wahoo að ég eigi að fá nýjan trainer og ég vona að Kría geti sent mér hann sem fyrst svo ég geti farið að hjólað fljótlega eftir aðgerðina. Ég er aðeins farinn að hugsa út í hvernig ég tek þá endurhæfingu en það mun að öllum líkindum fara eftir því hvernig mér líður í öxlinni. Sennilega byrjar maður bara 30 mínútum rólega og vinnur sig svo upp.
Ummæli